Kynlífstæki
Í versluninni Blush er hægt að nálgast jóladagatal á 26.990 krónur. Í því er að finna tuttugu og fjögur box gjöfum sem henta einstaklingum og pörum af öllum kynjum. „Dagatalið er fullt af spennandi vörum sem henta fyrir typpi og píkur, sem dæmi má nefna endurhlaðanleg kynlífstæki, sleipiefni, nuddolíu, bindibúnað og fleira,“ segir í lýsingunni.
Verslunin Losti er einnig með dagatal sem inniheldur kynlífstæki og segir Losti að innihaldið „tryggja að desember verður sjóðheitur og eftirminnilegur.“ Gjafirnar eru hágæða kynlífstæki, sleipiefni, líkamsmálning, nuddvörur, og búnaður fyrir bindingarleiki svo eitthvað sé nefnt segir í lýsingunni. Það er á 21.900 krónur.
Snyrtivörur
Förðun og húðumhirða
Í snyrtivöruversluninni Eliru er hægt að nálgast jóladagatal á 34.990. „Í dagatölunum er líka að finna nokkra gullmiða,“ segir einnig í lýsingunni og þeir sem hljóta slíkan miða fá upplifun líkt og litun og plokkun eða stærri gjöf eins og burstasett.
Jóladagatal Nola hefur notið mikilla vinsælda. „Við ákváðum að taka algjöra U-beygju og breyta öllu dagatalinu svo núna er pláss fyrir margar vörur í fullri stærð. Dagatalið er gert frá grunni af okkur,“ segir um dagatalið í ár. Það kostar 34.990 krónur og í því er að finna snyrtivörur að andvirði tæplega 100.000 krónur.
Aðventudagatal Lancomé er á 27.998 krónur og fæst meðal annars í Lyf & heilsu Kringlunni. Umbúðirnar eru gullfallegar og inni í þeim leynast ýmsar vörur frá merkinu.

Naglalökk
Jóladagatalið frá Essie inniheldur 24 naglavörur. Þar er geta birst naglalökk í öllum regnbogans litum til þess að lífga upp á skammdegið og hvetja aðila til þess að breyta til og prófa eitthvað nýtt. Það er á 12.999 krónur.

Áfengi
Allskonar áfengi
Í Nýju vínbúðinni má finns fjöldan allan af áfengum dagatölum. Þar er hægt að nálgast viskí, romm, vín, gin eða vodka dagatal á verðbilinu 27.600 -38.000. Þar er einnig að finna bjórdagatal á 19.800 krónur. „Fimm stjörnu dagatalið inniheldur blöndu af Pale Ale, bjór, IPA, stouts og gæða jólabjór frá Íslandi, Danmörku og Þýskalandi.“
Bjór dagatal
Jóladagatal Bjórlands 2022 er á 21.990 krónur. Í því er að finna einn skammt af hágæða íslensku handverksöli fyrir hvern desemberdag fram að jólum. „Í kassanum eru 24 flöskur eða dósir af bjór frá öllum helstu íslensku smábrugghúsunum í fallegum sérhönnuðum pakka,“ segir í lýsingunni.

Góðgæti og annað sniðugt
Lakkrís
Lakrids By Bülow dagatalið hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og fæst meðal annars í Epal og í Sjoppan vöruhús. Þar er nýr moli á hverjum degi fram að jólum í desember.
Súkkulaði
Klassískt súkkulaði jóladagatal er eitthvað sem fæstir vaxa upp úr og hentar því líka fullorðnum einstaklingum. Hægt er að nálgast slíkt í mörgum útgáfum eins og frá Lindt, Kinder, Oreo eða mars.
Kaffi
Jóladagatal Nespresso í ár er hannað af Pierre Hermé. Í því er að finna tuttugu og fjögur kaffihylki og eina gjöf og kostar það 7.290 krónur.
Te
Yogi dagatalið inniheldur te og fæst í matvöruverslunum. Verðið er í kringum tvö þúsund krónur og ætti að ylja einstaklingum í kuldanum.

Veiðiflugur
Veiðihornið í samstarfi við Shadow Flies býður upp á jóladagatal fyrir fluguveiðimanninn. „Í hverju boxi er vel þekkt og veiðin veiðifluga sem á eftir að lokka margan fiskinn á næsta ári. Auk flugunnar er í boxinu nafn hennar og QR kóði sem leiðir eigandann á síðu með frekari upplýsingar og fróðleik um fluguna,“ segir í lýsingunni.