
Jól

Pottaskefill kom til byggða í nótt
Pottaskefill er fimmti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hirti skítuga pottana úr eldhúsinu og skóf þá að innan með puttunum. Þá þurfti ekki að þvo þá.

Þvörusleikir kom til byggða í nótt
Þvörusleikir er fjórði jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var mjór eins og girðingarstaur og þótti best að sleikja þvörur sem notaðar voru til að hræra í pottum.

Heitustu jólagjafir ársins fyrir herrann
Jólin nálgast nú óðfluga og er ekki seinna vænna að huga að jólagjöfum. Gjafirnar geta verið vandfundnar fyrir þá sem eru manni kærastir en mikilvægt er að minna sig á að það er hugurinn sem gildir. Lífið á Vísi tók saman lista yfir heitustu jólagjafir ársins fyrir karlmenn.

Stúfur kom til byggða í nótt
Stúfur er þriðji jólasveinninn sem kemur til byggða. Honum fannst best að kroppa leifarnar af pönnunum, sérstaklega ef þær voru vel viðbrenndar.

„Mamma mín, taktu úr lás alla sunnudaga á næstunni svo ég komist örugglega inn“
Elín Metta Jensen knattspyrnukona og læknanemi segir mikilvægt að eyða tíma með fjölskyldu og vinum á aðventunni til að hámarka huggulegheitin. Föndur, bæjarrölt og lakkrístoppar mömmu hennar séu þar efst á blaði

Giljagaur kom til byggða í nótt
Giljagaur er annar jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hafði yndi af mjólkurfroðunni og hélt sig mest í fjósinu.

Kertasníkir sá eini sem gefur Rakel enn í skóinn
Rakel Orradóttir markþjálfi og áhrifavaldur er mikið jólabarn og segir jólabaksturinn heilaga stund á aðventunni. Hún mun verja jólunum og áramótunum í sólinni á Tenerife ásamt fjölskyldu sinni og tengdafjölskyldu. Rakel er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Stekkjarstaur kom til byggða í nótt
Stekkjarstaur kom til byggða í nótt. Honum fannst best að sjúga ærnar en var með staurfætur svo það gekk heldur erfiðlega.

Pallíettur og jólakokteilar í hádeginu hjá flugfreyjum Icelandair
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, flugfreyja og matarbloggari, bauð vinkonum sínum og samstarfskonum hjá Icelandair í ljúffengan jólabrunch að heimili sínu í Keflavík á dögunum. Pallíettur, jólakokteilar og hláturssköll einkenndu jólagleðina.

Heitustu jólagjafir ársins fyrir hana
Jólin nálgast nú óðfluga og er ekki seinna vænna að huga að jólagjöfum. Gjafirnar geta verið vandfundnar fyrir þá sem eru manni kærastir en mikilvægt er að minna sig á að það er hugurinn sem gildir. Lífið á Vísi tók saman lista yfir heitustu jólagjafir ársins.

„Ég verð meira jólabarn með hverju árinu sem líður“
Salka Sól Eyfeld tónlistarkona segist verða meira jólabarn með hverju árinu sem líður. Hún þakkar það börnunum sínum tveimur og segist kunna að meta jólahefðir foreldra sinna enn betur. Laufabrauðsgerð sé órjúfanlegur þáttur í aðdraganda jóla.

„Ég hlakka til að sýna henni litla landið mitt“
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur sem Auður, hlakkar til að verja jólunum í faðmi fjölskyldunnar og kærustunnar Cassöndru á Íslandi. Hann treður upp í Iðnó 16. desember en þetta er í fyrsta sinn sem hann spilar opinberlega á Íslandi eftir að hafa dregið sig í hlé um langt skeið. Auðunn er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Börnin elska jólaþorpið hans afa
Eitt glæsilegasta jólaþorp landsins er að finna í sjálfum höfuðstaðnum og fyllir heilt herbergi. Börnin elska meistaraverkið en mega bara horfa, ekki snerta.

„Kransarnir mínir eru fullkomlega ófullkomnir“
Lára Ósk Hjörleifsdóttir lífskúnstner og fagurkeri segir eftirspurn eftir viðburðum tengdum skreytingum og einstakri framsetningu mun meiri hér á landi en hún gerði sér grein fyrir. Í aðdraganda jóla töfrar Lára fram hvern jólakransinn á fætur öðrum.

Glimmer og glamúr í hátíðardressum ársins
Jólin nálgast óðfluga og er ekki seinna vænna en að hefja leitina að hinu fullkomna hátíðardressi. Glimmer, glamúr og pallíettur einkenna hátíðina sem endurspeglast í fjölbreyttu úrvali fatnaðar og fylgihluta.

Segir engin jól án sörubaksturs
Elenóra Rós Georgesdóttir bakari birti klassíska uppskrift að sörum sem hún hefur bakað á hverju ári með móður sinni frá því að hún var lítil. Hefðin hefur síðan verið hennar eftirlætis á aðventunni.

Jólastöðin komin í loftið
Útvarpsstöðin LéttBylgjan er venju samkvæmt komin í nýjan búning: jólabúninginn. Eins og á hverju ár breytist útvarpsstöðin í Jólastöðina nokkrum vikum fyrir jól þar sem jólalög hljóma allan sólarhringinn.

Með þrjú jólatré og jólakúlublæti
Metsölu og verðlauna rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir er með nett blæti fyrir jólakúlum að eigin sögn.

Jólajóga fyrir krakka - Friður
Þóra Rós Guðbjartsdóttir gerði jólajógaþætti fyrir Vísi og æfing dagsins nefnist Friður. Æfinguna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Upplifir öðruvísi jól í ár: „Það verður alvöru jólasól og stemning“
Þetta stefnir í eftirminnileg jól hjá tónlistarkonunni Guðrúnu Ýr Eyfjörð eða GDRN. Ekki nóg með það að hún sé að fara halda sín fyrstu jól erlendis, þá eru þetta einnig hennar fyrstu jól sem móðir. Guðrún er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Jóladagatal Vísis: Selma og Jónsi koma með jólin til þín
Hvað gerist ef við blöndum saman einhverjum bestu söngvurum landsins og einu besta og ástsælasta jólalagi þjóðarinnar? Útkoman er hér, í síðasta lagi Jóladagatals Vísis.

Bjó til skautasvell í garðinum
Ólöf Dagný Óskarsdóttir bjó til skautasvell í garðinum sem hún segir tilvalið fyrir jólamyndatökurnar. Hún segist vera mikil stemningsmanneskja og hélt stærðarinnar skötuboð fyrr í kvöld. Ólöf Dagný segir svellið hafa vakið mikla lukku.

Fólk ætti að slaka á væntingunum fyrir jólin: „Það er rosaleg geðveiki í gangi“
Hátíð ljóss og friðar getur verið erfiður tími fyrir marga af ýmsum ástæðum. Allt of margir miða sig við jólaglansmyndina sem birtist okkur á samfélagsmiðlum og eru svo með nagandi samviskubit yfir því að raunveruleikinn sé allt annar.

Var fram á aðfangadag að vinna að jólakveðju fyrir Apple: „Þetta var svo geggjað draumaverkefni“
Ljósmyndarinn og myndlistarkonan Saga Sig nýtur sín vel í jólaösinni. Hún elskar að velja gjafir og brasa fyrir jólin, eitthvað sem mörgum þykir stressandi. Gjafainnpökkunin er þó eitthvað sem liggur ekki vel fyrir henni en hún bjargar sér með frumlegum leiðum. Saga Sig er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Jóladagatal Vísis: Páll Óskar kemur okkur í gegnum síðustu verkefnin
Þorláksmessa er runninn upp og jólin eru bókstaflega handan við hornið. Af því tilefni verður lag dagsins með örlitlu breyttu sniði, en ekki er um eitt lag að ræða heldur heila tónleika.

Bregður sér í allra kvikinda líki í aðdraganda jólanna
Förðunarfræðingurinn Embla Wigum, sem slegið hefur í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok, heldur úti afar skemmtilegu jóladagatali á samfélagsmiðlum sínum.

Aðeins einn hlutur á óskalista Ragnars Jónassonar þessi jólin
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur haft í nógu að snúast fyrir þessi jólin. Hann og Katrín Jakobsdóttir hafa fylgt eftir metsölubók sinni, glæpasögunni Reykjavík. Ragnar segir það þó hægara sagt en gert að finna lausan tíma í dagatali forsætisráðherra. Ragnar er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Jóladagatal Vísis: Gæsahúðarflutningur Jóhönnu Guðrúnar á laginu Vetrarsól
Það er óumflýjanleg staðreynd að Jóhanna Guðrún er ein allra færasta söngkona landsins og þótt víðar væri leitað. Hér er hún með gæsahúðarflutning á laginu Vetrarsól á jólatónleikum Fíladelfíu árið 2016.

Helvítis jólakokkurinn: Reyktur göltur í Bolabaði
Ívar Örn Hansen, betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, er kominn í jólaskap. Hann ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ fram að jólum í þáttunum Helvítis jólakokkurinn.

Kýs samveru með ástvinum umfram jólagjafir: „Finnst gjafir alltaf smá bruðl“
Tónlistarkonan Klara Elias gaf nýverið út jólalag og hélt sína eigin jólatónleika um síðustu helgi. Þrátt fyrir það segist hún vera heldur mikill Grinch og finnst henni jólin vera stressandi alveg fram á aðfangadagskvöld. Klara er viðmælandi í Jólamola dagsins.