Líta á jólagjöfina sem umbun 10. október 2019 09:00 Starfsmönnum finnst alltaf spennandi að vita hvað kemur upp úr jólapakkanum. NORDICPHOTOS/GETTY
Þau fyrirtæki sem hafa ákveðið að nota peninginn sem átti að fara í jólagjafir í góðgerðarstarf telja sig með því vera að sýna samfélagslega ábyrgð. Greitt er fyrir menntun barna í þróunarlöndum eða settur peningur í tiltekin verkefni. Aðrir nota upphæðina til að styðja við innlend hjálparsamtök. Í desember 2016 var gerð könnun meðal 1.005 Norðmanna hjá TNS Gallup um viðhorf til jólagjafa frá vinnuveitendum. Þátttakendur voru á aldrinum 18-68 ára og bjuggu víðs vegar um landið, höfðu mismunandi menntun og heimilistekjur. Sams konar könnun var gerð 2014 en þá svöruðu 60% þátttakenda að þau væru ánægð með að fá jólagjafir frá vinnuveitendum. Árið 2016 voru það 55%. Einungis 6% töldu að það ætti að sleppa jólagjöfum alfarið en voru 8% árið 2014. Hin dæmigerða manneskja sem vill að jólagjöfin fari til góðgerðarmála er vel menntuð kona. Eldra fólk var frekar á þessari skoðun líka en yngra fólk vildi fá sína jólagjöf. Mörgum finnst frábært að fá peningagjöf eða matarkörfu enda kosta jólin mikið. Samkvæmt könnun eyða Norðmenn í kringum 150 þúsund krónum í mat og gjafir í desember. Í könnuninni sem gerð var í fyrra sögðust 56% vilja draga úr gjafakaupum. Sjö af hverjum tíu sögðust aldrei hafa keypt notaðar vörur til jólagjafa. Margir voru þó jákvæðir fyrir því að endurnýta hluti. Mikið hefur verið rætt um umhverfismál og sóun. Með því að endurnýta hluti er hægt að gefa persónulega gjöf. Að auki væri það gott fyrir samfélagið og budduna.
Mest lesið Jólamúffur Svandísar: Lærði að baka á Instagram Jól Jólamolar: Svört rós frá kærastanum eftirminnilegasta jólagjöfin Jól Gluggagægir kom til byggða í nótt Jól Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Jól Wellington-grænmetisætunnar Jól Börnin elska jólaþorpið hans afa Jól Opið bréf til jólasveinanna: Góð ráð og hugmyndir í skóinn Jól Dásamlega góðir marengstoppar Jól Bregður sér í allra kvikinda líki í aðdraganda jólanna Jól Súrmjólkurbúðingur: Óvænt sælkeratromp á jólum Jól