Fyrirkomulagið í Evrópukeppnum UEFA er nefnilega þannig að lið græða á því að hafa verið með árin á undan. Það gefur þeim möguleika á að mæta léttari andstæðingum en ella. Aðeins að takmörkuðu leyti er tekið tillit til þess úr hvaða deild þau koma.
Bara fyrir það að vera með í undankeppnunum fá lið stig á styrkleikalista UEFA, og hver sigur og jafntefli gefur fleiri stig. Listinn er svo notaður til að raða í styrkleikaflokka áður en dregið er um hvaða lið mætast.
Breiðablik hefði staðið mun betur en Stjarnan
Núna er til að mynda orðið ljóst að kvennalið Stjörnunnar kemst í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, eftir frábært tímabil í Bestu deildinni, en Breiðablik situr eftir með sárt ennið.
Þegar dregið verður um andstæðinga á næsta ári verður Stjarnan í neðri styrkleikaflokki en Breiðablik hefði fengið sæti í efri styrkleikaflokki.

Að sama skapi yrði karlalið KA með lágmarksfjölda stiga sem íslenskt lið gæti haft á styrkleikalista, áður en dregið yrði í undankeppni Sambandsdeildar, verði KA-menn með þar eins og útlit er fyrir.
Þetta er vegna þess að á styrkleikalistanum er horft til árangurs liðanna síðustu fimm leiktíðir. Karlalið KA hefur ekki spilað í Evrópukeppni í tæpa tvo áratugi og á næsta ári strikast út stig úr síðustu Evrópukeppni sem kvennalið Stjörnunnar tók þátt í.
Fyrirkomulag sem hentar einokunarliðum
Það gerir því íslenskum félagsliðum erfiðara fyrir að ná alþjóðlegum árangri, með tilheyrandi tug- og hundraða milljóna króna verðlaunafé, hve dugleg þau eru að skiptast á um að vinna titla hér á landi.
Kvennalið Breiðabliks hafði með því að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrra, og frekari árangri, skapað sér mjög sterka stöðu á styrkleikalista og stendur til að mynda mun ofar en Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára, Valur. En það nýtist íslenskum liðum ekki nema að takmörkuðu leyti, í formi landsstiga (4,85 stig af 17,85 sem Breiðablik var með á síðasta lista).
Að sama skapi hefðu KR og FH getað fengið auðveldari andstæðinga en KA í Evrópuleikjum næsta sumar.
Eins gaman og fólki kann að finnast það vera hve mismunandi það er hvaða lið vinna titla eða ná öðrum árangri á Íslandi, þá gerir það íslenskum fótbolta erfiðara fyrir að ryðja sér til rúms á alþjóðlegum vettvangi.
Vaduz frá Liechtenstein, sem alltaf kemst í Evrópukeppni sem bikarmeistari síns lands þrátt fyrir að engin deild sé í smáríkinu, er þannig ofar en öll íslensku karlaliðin, þrátt fyrir að hafa ekki náð neitt frábærum árangri, og það hjálpaði liðinu að komast alla leið í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar í sumar.