Samtökin segja að það sé með ólíkindum að hæstu áfengisskattar í Evrópu dugi ekki sitjandi ríkisstjórn, þrátt fyrir að í orði kveðist hún styðja atvinnulífið í allri sinni fjölbreytni.
„Í því samhengi er boðuð 7,7% hækkun á áfengisgjaldi með öllu ólíðandi, enda mun hún annað hvort koma úr tómum vasa veitingamanna eða fara út í verðlagið, sem aftur stuðlar að hærra verðlagi og viðvarandi verðbólgu,“ segir í yfirlýsingunni, sem birt var hér á Vísi fyrr í kvöld.
Greinin þegar í spennitreyju
Í yfirlýsingunni segir að veitingageirinn hafi barist í bökkum undanfarin ár. Há opinber gjöld og óhagstæðir kjarasamningar hafi haldið greininni í spennitreyju um árabil og Covid-aðgerðir stjórnvalda riðið mörgum fyrirtækjum að fullu.
„Framundan er dimmur vetur og nýkynnt fjárlagafrumvarp varpar ekki ljósi inn í hann. Þvert á móti má ætla af því, að nú eigi kné að fylgja kviði og áfram skuli níðst á atvinnugrein sem er illa löskuð,“ segja veitingamenn.
Þá setji hljóðan við kaldar kveðjur þess opinbera, enda felist í þeim brotin loforð og dapurlega sýn sem haldi vöku fyrir veitingamönnum. Að óbreyttu sé ljóst að afleiðingarnar af hækkandi álögum verði alvarlegar og veitingastöðum muni fækka.
Hækkun bæti gráu ofan á svart
Í yfirlýsingunni segir að vilji stjórnvalda til að bæta frekari byrðum á veitingamenn bætist ofan á launaþróun upp á við og aukin umsvif eftirlitsgeirans sem hið opinbera reki og rukki hressilega fyrir. Þá hafi kostnaður aukist vegna verðbólgu sem hið opinbera hafi ekki brugðist við.
„Allt ofangreint kyndir undir áframhaldandi verðbólgu og takmarkar möguleika atvinnurekenda að skila viðunandi rekstrarárangri,“ segja veitingamenn.
Svipað hljóð mátti heyra í Félagi atvinnurekenda, sem tóku saman áhrif hækkunar áfengisgjalds á verðlag í gær.
Hækkunin fæli ferðamenn frá
Veitingamenn segja að mörgum ferðamanninum þyki þegar nóg um verðlagið hér á landi, sem sé með því hæsta í heiminum. Sér í lagi þegar kemur að áfengum drykkjum. „Veruleg hækkun á opinberum áfengisgjöldum er síst til þess fallin að auka samkeppnishæfni Íslands eða stuðla að auknum fjölda ferðamanna. Þvert á móti er hún fráhrindandi og minnkar aðdráttarafl okkar í alþjóðlegu samhengi,“ segja þeir.
„Veitingageirinn vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Við bjóðum góðan mat og góða drykki, sköpum þúsundir starfa og gegnum mikilvægu hlutverki við mótun menningu lands og þjóðar. Við höfum þurft að þola margt á undanförnum misserum en nú er nóg komið. Við treystum því, að Alþingi láti óréttlætið ekki fram ganga og hafni auknum álögum á greinina,“ segja Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði að lokum