Kaupsamningar ekki verið færri síðan í apríl 2015 Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. ágúst 2022 09:43 Samkvæmt skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar virðist fasteignamarkaðurinn vera farinn að kólna. Vísir/Vilhelm Umsvif á íbúðamarkaði fara minnkandi en kaupsamningar um íbúðarhúsnæði hafa ekki verið færri síðan í apríl 2015 ef miðað er við 6 mánaða hlaupandi meðaltal. Fyrstu merki kólnunar á fasteignamarkaði virðast komin fram.
Þetta kemur fram í nýjustu mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir ágúst. Hér á þessu grafi má sjá hvernig fjöldi kaupsamninga hefur hríðlækkað undanfarna mánuði.HMS Þar kemur einnig fram að verð á íbúðum í fjölbýli hafi aðeins hækkað um hálft prósent í júní á höfuðborgarsvæðinu en þar áður höfðu komið fimm mánuðir í röð þar sem mánaðarleg hækkun var á bilinu 2,4 til 3,2 prósent. Þrátt fyrir það seldust 53,3 prósent íbúða á landinu öllu yfir ásettu verði samanborið við 50,3 prósent íbúða í maí. Þá styttist meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu í júní úr 45,9 dögum í 41,9 en á landsbyggðinni styttist hann enn meira, úr 66 dögum í 57. Meðalsölutími íbúða lækkaði í júní bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.HMS Í skýrslunni kemur fram að árshækkun leiguverðs mælist 9,6 prósent á höfuðborgarsvæðinu í júní miðað við vísitölu leiguverðs og að meðalfjárhæð greiddrar leigu hafi verið 207.200 krónur í júní miðað við þinglýsta leigusamninga. Í júní fyrir ári síðan var hún tæpum tíu þúsund krónum lægri, eða 197.500 krónur. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun segir í skýrslunni að þrátt fyrir að helstu mælikvarðar séu ekki ótvíræðir þá séu líklega komni fyrstu merki um kólnun á fasteignamarkaði.
Reykjavík Húsnæðismál Fasteignamarkaður Leigumarkaður Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira