Árásargjarn macaque-api hafði hrellt íbúa borgarinnar Yamaguchi í nokkrar vikur. Hann hafði brotist inn til einhverra og ráðist á fólk á öllum aldri. Það kom ekki fram fyrr en í þessari viku að talið væri að apinn væri ekki einn á ferð og væri hluti af gengi.
Apinn, sem talinn er hafa verið leiðtogi gengisins, var felldur í gær eftir að hann fannst á skólalóð í borginni. Þrátt fyrir að hann hafi verið drepinn halda árásirnar áfram og því ljóst að yfirvöld eiga eftir að halda apaveiðunum áfram.
Macaque-apar voru eitt sinn í útrýmingarhættu en stofninn hefur verið að stækka síðustu ár. Samkvæmt rannsókn frá Yamagata-háskóla hefur þó þessi fjölgun apanna orðið til þess að þeir lendi oftar í útistöðum við mannfólk.