Bakslag í baráttunni og framkvæmdin ómöguleg: „Þetta er bara stórkostlega galin hugmynd“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 16. júlí 2022 21:58 Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata. Þingflokksformaður Pírata segir hugmyndir um að afnema refsingu aðeins fyrir ákveðinn hóp stórgallaðar og spyr hvort halda eigi fíklaskrá ríkisins. Sérfræðingur í skaðaminnkun segir tillöguna bakslag í baráttunni og telur hana á skjön við lög.
Heilbrigðisráðherra skipaði fyrr á árinu starfshóp um afglæpavæðingu neysluskammta eftir að frumvarp Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, náði ekki í gegn á þinginu og í gær var tilkynnt um áform um afnám refsingar, þó aðeins fyrir veikasta hóp samfélagsins í tilteknum tilvikum og með tiltekið magn fíkniefna. Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, er meðal þeirra sem hafa lagt fram frumvarp um afglæpavæðingu en hún gagnrýnir tillögu ráðherrans, sem hún telur jaðarsetja fólk enn frekar. „Núverandi stefna er skaðleg. Við vitum þetta, það hefur sýnt sig, við höfum áralanga reynslu af núverandi stefnu. Samt á einhvern veginn bara að afnema þessa skaðlegu stefnu fyrir hluta vímuefnanotenda,“ segir Halldóra. Slík nálgun jaðarsetji fólk aðeins frekar og ýti undir þeirra fíknivanda. Þá sé það með öllu óljóst hvernig flokka eigi veikustu einstaklingana. „Ég skil ekki alveg hvernig það á að framkvæma þetta. Eiga að vera einhvers konar fíklaskrár ríkisins? Á fólk að fá einhvers konar skírteini eða vottorð sem það þarf að sýna um að það sé nægilega veikt til þess að ekki þurfi að refsa þeim? Þetta er bara stórkostlega galin hugmynd,“ segir Halldóra. Það virðist þó ekki vera á dagskrá núverandi ríkisstjórnar en Halldóra segist jafnvel munu leggja fram eigið frumvarp. „Ef að niðurstaðan og afurðin er í samræmi við það sem er verið að tala um núna, að séu áform heilbrigðisráðherra í þessum málaflokki þá held ég að það sé klárlega þörf á því að leggja fram alvöru frumvarp um að afglæpavæða fyrir alla,“ segir Halldóra. Ekki hægt að ákveða hverjir eiga að búa við hvaða lagalegu réttindi Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Matthildi - samtökum um skaðaminnkun, tekur í sama streng og Halldóra og segir að lengi hafi verið barist fyrir afglæpavæðingu. Tillagan hafi komið þeim sem hafi starfað með vímuefnanotendum um árabil verulega á óvart og sé mikið bakslag. Mikil vinna hafi farið fram við að fræða stjórnmálamenn og almenning um mikilvægi afglæpavæðingar. „Rannsóknir sýna að það eykur öryggi þeirra og dregur úr dauðsföllum og það eykur líkur á því að fólk leiti sér heilbrigðis- og félagslegrar þjónustu, og við viljum hámarka öryggi og að fólk verði fyrir sem minnstum skaða,“ segir Svala. Hvað tillögu ráðherrans varðar telur Svala ljóst að hún sé á skjön við lög þar sem ákveða þurfi hverjir séu veikastir eða mest jaðarsettir. Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Matthildi - samtökum um skaðaminnkun. „Ef maður skoðar bara lög út frá friðhelgi einkalífsins, persónuvernd og jafnræðislaga, þá er þetta í rauninni á skjön við lagaleg réttindi fólks,“ segir hún og bætir við að sama megi segja um mannréttindi. „Við getum ekki verið að taka ákveðinn hóp út og segja að hann á að búa við þessi lagalegu réttindi og mannréttindi, en allir hinir eiga ekki rétt á því.“ Meirihluti þjóðarinnar virðist vera sammála skaðaminnkunarsérfræðingum en samkvæmt könnun prósents sem var framkvæmd í mars er rúmlega helmingur landsmanna hlynntur afglæpavæðingu. „Stjórnvöld og heilbrigðisráðherra þurfa að taka skýra afstöðu með því að við ætlum að innleiða fulla afglæpavæðingu á neysluskömmtum sem eru til einkanotkunar fyrir alla vímuefnanotendur í landinu,“ segir Svala.
Fíkn Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Píratar Tengdar fréttir Vill afnema refsingu fyrir veikasta hópinn Heilbrigðisráðuneytið hefur sett tillögu að lagasetningu í samráðsgátt sem lýtur að afnámi refsingar fyrir veikasta hóp fíkla í tilteknum tilvikum með tiltekið magn og efni ávana- og fíkniefna. 15. júlí 2022 16:13 Rúmlega helmingur hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta Rúmlega helmingur Íslendinga er hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem framkvæmd var af Prósent þar sem svarendur voru spurðir „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)(t) ert þú afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi?“ 5. apríl 2022 10:53 Vill fara mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg Fjármálaráðherra telur að fara þurfi mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg á Íslandi. Innviðaráðherra segir ekki ráðlegt að ráðast í afglæpavæðingu neysluskammta áður en önnur úrræði séu líka tilbúin. 26. mars 2022 18:46 Stefnir á að frumvarp um afglæpavæðingu verði á dagskrá í haust Heilbrigðisráðherra segir að frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta hafi verið sett á bið því að starfshópur sem fer fyrir málinu treystir sér ekki til að klára sín störf fyrir fyrsta apríl. Hann reiknar með að leggja fram betrumbætt frumvarp fyrir þingið í haust. Hann segist hlynntur refsileysi en að fíkniefni verði gerð upptæk finnist þau á fólki. 22. mars 2022 22:51 „Langar mest að gráta“ Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra er búinn að setja fyrirhugað frumvarp sitt um afglæpavæðingu neysluskammta á salt. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, sem barist hefur fyrir lagabreytingu í þá átt, á vart orð til að lýsa vonbrigðum sínum. 21. mars 2022 11:15 Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Sjá meira
Vill afnema refsingu fyrir veikasta hópinn Heilbrigðisráðuneytið hefur sett tillögu að lagasetningu í samráðsgátt sem lýtur að afnámi refsingar fyrir veikasta hóp fíkla í tilteknum tilvikum með tiltekið magn og efni ávana- og fíkniefna. 15. júlí 2022 16:13
Rúmlega helmingur hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta Rúmlega helmingur Íslendinga er hlynntur afglæpavæðingu vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem framkvæmd var af Prósent þar sem svarendur voru spurðir „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)(t) ert þú afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta fíkniefna á Íslandi?“ 5. apríl 2022 10:53
Vill fara mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg Fjármálaráðherra telur að fara þurfi mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg á Íslandi. Innviðaráðherra segir ekki ráðlegt að ráðast í afglæpavæðingu neysluskammta áður en önnur úrræði séu líka tilbúin. 26. mars 2022 18:46
Stefnir á að frumvarp um afglæpavæðingu verði á dagskrá í haust Heilbrigðisráðherra segir að frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta hafi verið sett á bið því að starfshópur sem fer fyrir málinu treystir sér ekki til að klára sín störf fyrir fyrsta apríl. Hann reiknar með að leggja fram betrumbætt frumvarp fyrir þingið í haust. Hann segist hlynntur refsileysi en að fíkniefni verði gerð upptæk finnist þau á fólki. 22. mars 2022 22:51
„Langar mest að gráta“ Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra er búinn að setja fyrirhugað frumvarp sitt um afglæpavæðingu neysluskammta á salt. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, sem barist hefur fyrir lagabreytingu í þá átt, á vart orð til að lýsa vonbrigðum sínum. 21. mars 2022 11:15