Þrítugasta og sjötta mótið hefst í dag N1 29. júní 2022 14:12 Einn umfangsmesti íþróttaviðburður landsins, N1 mótið í knattspyrnu, hefst á Akureyri í dag, miðvikudaginn 29. júní og stendur mótið til laugardagsins 2. júlí.
N1 er styrktaraðili mótsins og KA sér um framkvæmd þess. Góð þátttaka er í á mótinu í ár en alls taka um 200 lið þátt í ár og eru um 2.000 þátttakendur skráðir til leiks. Því er um að ræða eitt stærsta N1 mótið til þessa sem er það 36. í röðinni. N1 hefur um árabil verið einn helsti styrktaraðili grasrótarstarf í knattspyrnu sem er mikilvægur grunnur fyrir framgang beggja kynja í íþróttinni. Nýlega skrifuðu KSÍ og N1 undir samning um áframhaldandi samstarf sem m.a. hlúir að starfsemi Hæfileikamótunar N1 og KSÍ en markmið verkefnisins er meðal annars að fylgjast með yngri leikmönnum af báðum kynjum og undirbúa fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar með bæði fræðslu og æfingum, auk þess að koma til móts við minni félög á landsbyggðinni til að gefa sem flestum leikmönnum tækifæri til að sýna sig og sanna. Lúðvík Gunnarsson, þjálfari og umsjónaraðili Hæfileikamótunar N1 og KSÍ, mun mæta á N1 mótið í ár og fylgjast þar með þátttakendum sem eiga framtíðina fyrir sér í knattspyrnu. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA: „Það er mikil tilhlökkun hjá okkur í KA að taka á móti efnilegum knattspyrnustrákum og aðstandendum þeirra og má búast við miklu lífi og fjöri hér á Akureyri á næstu dögum. Síðustu tvö mót hafa einkennst af hinum ýmsu takmörkunum og reglum og fögnum við því að þátttakendur geti sleppt af sér beislinu í ár, takmarkalaust. Það verður því gaman að fylgjast með um tvöþúsund spenntum fótboltaköppum í keppnisham þar sem leikgleðin og dugnaðurinn ræður ríkjum.“ Þyrí Dröf Konráðsdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá N1: „N1 mótið hefur lengi verið einn af hápunktum sumarsins hjá ungum knattspyrnuköppum og á mótinu hafa margir verðandi atvinnumenn tekið sín fyrstu skref í átt að landsliðsferli. Mótið hefur því alltaf verið órjúfanlegur hluti af N1-hjartanu og hlökkum við til að fylgjast með fótboltasnillingum spreyta sig á skemmtilegasta móti ársins. KA á einnig heiður skilinn fyrir frábæra umgjörð og framkvæmd á mótinu ár hvert og sést hér vel að gott og gjöfult samstarf getur skipt sköpum.“
Íþróttir barna Akureyri KA Mest lesið Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira