Fleiri valkostir í Bónus með Salling Hagar 16. september 2026 12:22 Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus Hulda Margrét Um 600 vörur frá danska smásölufyrirtækinu Salling Group hafa bæst í hillur Bónus á síðustu mánuðum. Vörurnar tilheyra fimm ólíkum vörulínum sem spanna allt frá einföldum grunnvörum yfir í lífrænar vörur og sælkeravörur. Innkaupasamstarf Haga við Salling gefur Bónus aukin tækifæri til að auka vöruúrval og bjóða fleiri valkosti á góðu verði. „
Ég myndi segja að helstu kostir samstarfsins við Salling séu hversu fjölbreyttar vörulínurnar eru og að þær geri okkur kleift að bjóða vörurnar á betra verði en tíðkast hefur hingað til fyrir sambærilegar vörur. Sumir horfa fyrst og fremst á verðið, aðrir vilja lífræna valkosti eða vörur sem uppfylla ákveðnar gæða og umhverfiskröfur. Þannig getum við boðið viðskiptavinum meira val innan ólíkra vöruflokka,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus. Salling vörulínunum hefur verið virkilega vel tekið frá því þær fóru að berast í verslanir. Að sögn Björgvins hefur aukin breidd í vöruúrvali sérstaklega vakið athygli á landsbyggðinni. „Við sjáum að viðskiptavinir eru tilbúnir að prófa nýjar vörur og viðtökurnar hafa verið frábærar. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel fjölbreyttara vöruúrval hefur fallið í kramið hjá viðskiptavinum okkar á landsbyggðinni.“ Fimm vörulínur með ólíkar áherslur Salling vörurnar í Bónus skiptast í fimm vörulínur sem hver hefur sína sérstöðu. En Salling er stærsta og breiðasta línan og nær yfir fjölbreytt úrval dagvara fyrir heimilið, þar sem áhersla er lögð á gæðavörur á góðu verði. Salling er stærsta og breiðasta línan en vörulínurnar eru fimm.Hulda Margrét Salling Budget er ódýrasta vörulína Salling og skipar sér í hóp ódýrustu valkostanna í Bónus, samhliða vörum frá Bónus og Euroshopper. Salling Budget í hillum Bónus en Budget vörurnar skipa sér í hóp ódýrustu valkostana.Hulda Margrét Salling ØKO er lífræna línan og með tilkomu hennar hefur lífrænum valkostum í hillum Bónus fjölgað mikið. Salling Øko vörur í hillum Bónus.Hulda Margrét Hulda Margrét Salling FRI nær yfir vörur þar sem áhersla er lögð á að forðast óæskileg efni og ilmefni. Margar vörur línunnar bera viðurkenndar norrænar merkingar á borð við Svaninn. Salling Fri vörur í hillum Bónus en vörurnar bera viðurkenndar norrænar gæðavottanir.Hulda Margrét Salling Princip samanstendur af sérstaklega völdum vörum þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi hráefni og gæði. Línan færir inn í úrval Bónus spennandi og vandaða valkosti sem gera það einfalt að lyfta hversdagsmáltíðinni. Salling Princip vörum í hillum Bónus, en með línunni er áhersla á framúrskarandi hráefni og gæði.Hulda Margrét Verðávinningurinn nú þegar sýnilegur Verðávinningurinn af Salling vörunum er þegar orðinn skýr. Vörurnar sem komið hafa í Bónus eru að meðaltali meira en 15% ódýrari en sambærilegar vörur sem fyrir voru og í mörgum tilfellum er verðmunurinn töluvert meiri. „Þegar við skiptum út vörum horfum við í hverja krónu. Markmiðið er alltaf að ný vara komi inn á lægra kílóverði og það hefur tekist í langflestum tilfellum. Að skila þessum ávinningi beint til viðskiptavina hefur verið eitt af lykilmarkmiðunum með innkomu Salling,“ segir Björgvin. En Salling snýst ekki eingöngu um verð. Með vörulínunum fimm hefur Bónus getað breikkað úrvalið og boðið upp á fleiri valkosti innan ólíkra vöruflokka. Meira úrval af lífrænum vörum Salling ØKO er að sögn Björgvins gott dæmi um þau tækifæri sem samstarfið skapar. „Lífræni flokkurinn er gott dæmi um það sem við viljum ná fram með samstarfinu. Við höfum getað breikkað úrvalið verulega og í sumum tilfellum hefur verð á samanburðarhæfum vörum lækkað um tugi prósenta,“ segir Björgvin. Hulda Margrét Fleiri ódýrir valkostir Nýju Salling vörulínurnar koma ekki í stað þeirra ódýru valkosta sem fyrir eru. Euroshopper og eigin vörur Bónus eru áfram í hillunum og Salling Budget bætist við sem enn einn valkosturinn þar sem lágt verð er í forgrunni. Vörur frá Bónus, Euroshopper og Salling eru nú meðal ódýrustu valkostanna í Bónus. „Fjölbreyttara úrval breytir aldrei grunnstefnunni okkar. Við viljum áfram að viðskiptavinir geti alltaf treyst því að finna ódýra valkosti í Bónus, en um leið getum við nú mætt fjölbreyttari þörfum en áður á frábæru verði,“ segir Björgvin. Stefnt er að því að vörum frá Salling fjölgi og úrvalið haldi áfram að breikka innan ólíkra vöruflokka. Hulda Margrét
Matur Fjármál heimilisins Verslun Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira