Blaðamaður hafði samband við Eyrúnu Ævarsdóttir og fékk að heyra meira um Flipp festival sem er haldin af sirkuslistafélaginu Hringleik:
Hvernig kom Flipp Festival til?
Flipp Festival kemur til úr þeirri þróun sem hefur verið að eiga sér stað í sirkusheiminum hérna á Íslandi undanfarin ár. Nýsirkus, eða samtímasirkus eins og hann er líka kallaður, þar sem sirkusgreinarnar eru nýttar sem sviðslistaform á borð við aðrar sviðslistagreinar, hefur verið að ryðja sér til rúms og metnaðarfull íslensk verk hafa litið dagsins ljós á undanförnum árum.
Við í sirkuslistafélaginu Hringleik höfum einnig verið í heilmiklu sambandi við sirkusheiminn erlendis, þá sérstaklega norrænu senuna, og því sáum við okkur leik á borði til að halda fyrstu íslensku hátíðina sirkus til heiðurs.
Hvaðan kom sú ákvöðun að fara í sirkusnám?
Það er bara rúmur áratugur síðan íslenskt sirkusfólk fór að taka til hendinni, æfa sig í sirkuslistum og skapa saman sýningar, en þróunin hefur verið annsi hröð síðan þá. Ég kynntist sjálf sirkushópnum sem kallaði sig Sirkus Íslands þegar ég var unglingur og fór að æfa með þeim og tók þátt í helstu verkefnum, og ákvað í kjölfarið, þegar ég hafði áttað mig á að til væru fyrirbæri sem nefnast sirkusskólar, að sækja um í háskólanám í sirkuslistum.
Hvar lærðir þú?
Ég komst inn í Codarts listaháskólann í Rotterdam og útskrifaðist þaðan árið 2016 og hef síðan verið starfandi sirkuslistakona á Íslandi.
Í skólanum sérhæfði ég mig sem loftfimleikakona og akróbati, gerði bæði einstaklingsverk og hóp-uppsetningar, auk þess að fá góðan grunn í helstu sirkusgreinum, dansi, leiklist og sköpun.
Bjóstu við því að geta starfar eingöngu við sirkuslistir þegar þú fórst í námið?
Ég veit ekki hvort ég hafi endilega búist við því að geta starfað eingöngu við sirkus þegar ég fór út, en var tilbúin að láta á það reyna. Það hefur gengið ótrúlega vel hingað til, þrátt fyrir að oft séu brekkurnar annsi brattar.
Maður þurfi að hugsa skapandi til þess að finna þessu listformi farveg, en eins og gefur að skilja eru allir innviðir fyrir sirkuslistasköpun eða sýningar ennþá nokkuð stutt komnar hér á landi. En þar sem reynir á er oft að finna einhverja sniðuga lausn, tækifæri eða hugmyndir sem hefði mögulega ekki komið upp ef maður hefði ekki þurft að aðlaga sig að aðstæðum hérlendis.
Það sem ég á við með þessu er að við höfum verið dugleg að skapa sirkusverk inn í þær aðstæður sem okkur býðst. Til dæmis flökkuðum við um landið með metnaðarfulla útisýningu í fyrra, sýninguna Allra veðra von, sem einnig verður sýnd á hátíðinni. Núna að njóta góðs af þeirri uppbyggingu sem á sér stað í Elliðaárstöð, þar sem við munum halda okkar fyrstu hátíð í fjölbreyttum rýmum þar, bæði úti og inni.
Við hverju má fólk búast á festivalinu?
Á Flipp festival má búast við því að sjá nýjan og spennandi sirkus, eitthvað sem sjaldan eða aldrei hefur sést á Íslandi. Hér eru komin saman það besta úr íslenskri sirkuslist undanfarin ár, ásamt tveimur erlendum verkum sem gefa okkur Íslendingum smá innsýn í það sem er mögulegt í þessu spennandi og aðgengilega listformi sem sirkusinn er.
Sýningarnar á hátíðinni eru miðaðar að breiðum aldurshópi, þar verður eitthvað fyrir alla.
Einnig verða opnar sirkussmiðjur báða dagana sem öll eru velkomin að taka þátt í.