Mál Depps byggir á grein sem Heard skrifaði fyrir og birtist í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist vera orðin andlit þeirra sem lifðu af heimilisofbeldi. Depp er þar hvergi nefndur á nafn en lögmenn hans segja að í greininni endurtaki Heard ásakanir sem gerðar voru opinberar í skilnaði þeirra árið 2016.
Málið er í aðalmeðferð hjá Sýsludómi Fairfax í Virginiu og er nú á annarri viku. Dómari í sýslunni veitti Depp áheyrnarrétt árið 2019 vegna málsins og úrskurðaði svo að hann gæti kært Heard þar sem Washington Post birtist á netinu í sýslunni.
Lögmenn Depps sögðu í málflutningi sínum í síðustu viku að Heard hafi eyðilagt mannorð Depps með því að „velja að ljúga upp á hann fyrir eigin gróða.“ Lögmenn Heard halda því hins vegar fram að Depp sé áfengis- og vímuefnasjúklingur sem leiti nú hefndar. Þar að auki hafi Heard skrifað greinina til þess að varpa ljósi á löggjöf um heimilisofbeldi og að hún hafi aldrei nafngreint Depp.
Fyrrverandi pararáðgjafi Depp og Heard bar vitni fyrir dómi fyrir helgi þar sem hún sagði allt hafa litið þannig út að bæði beittu hitt ofbeldi. Heard hafi frekað viljað slást við Depp en að skilja við hann og að hún hefði barið Depp til að halda honum í sambandinu. Heard hafi oft barist á móti eftir að Depp hafi gripið til ofbeldisverka.
Heard fékk í maí 2016 nálgunarbann á Depp eftir að hún lýsti því að Depp hafi barið hana í andlitið með farsíma. Þegar málið var tekið fyrir af dómstólum á sínum tíma sýndi Heard myndir þar sem greinilegt var að hún væri með marbletti í andliti.
Depp hefur neitað því harðlega að hafa nokkurn tíma beitt Heard ofbeldi og segist sjálfur fórnarlamb heimilisofbeldis af hendi Heard. Þetta er annað skiptið sem Depp hefur höfðað mál gegn Heard vegna ásakananna en hann tapaði slíku máli fyrir dómstólum í Bretlandi fyrir tveimur árum síðan.
Þá höfðaði hann mál gegn News Group Newspapers, sem gefa út breska götublaðið The Sun, eftir að hann var kallaður „heimilisofbeldismaður“ (e. Wife beater) í grein sem birtist á miðlinum árið 2018. Hann tapaði því máli og kom fram í niðurstöðu dómstóla að Sun hafi sýnt fram á næg sönnunargögn sem réttlættu nafngiftina.
Lögmenn Depp sögðu í kjölfar þess að dómur féll í málinu gegn Sun að dómarinn hafi stólað of mikið á vitnisburð Heard, sem væri óáreiðanlegt vitni og lygasjúk.