Innlent

Stunguárás í miðbænum í nótt

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ekki liggur fyrir hvort brotaþoli er í lífshættu eða ekki.
Ekki liggur fyrir hvort brotaþoli er í lífshættu eða ekki. Vísir/Vilhelm

Tveir karlmenn voru handteknir á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa stungið mann með eggvopni fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að árásin hafi átt sér stað í Ingólfsstræti.

„Árásarþoli var fluttur með hraði á sjúkrahús þar sem hann fór samstundis í aðgerð vegna þeirra áverka sem hann hlaut. Þegar þetta er ritað er hann enn í aðgerð og ekki ljóst hvort viðkomandi er í lífshættu eða ekki,“ segir í skeyti lögreglunnar til fréttastofu, sem barst upp úr klukkan 7 í morgun.

Þá segir að hinir handteknu verði yfirheyrðir síðar í dag vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×