Lífið

Beggi Ólafs og Hildur Sif hætt saman

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þau Beggi Ólafs og Hildur Sif eru hætt saman.
Þau Beggi Ólafs og Hildur Sif eru hætt saman. Instagram

Fyrirlesarinn og doktorsneminn Beggi Ólafs og Hildur Sif Hauksdóttir, sérfræðingur hjá SaltPay, eru hætt saman eftir rúmlega átta ára samband. 

Það vakti athygli þegar Hildur Sif auglýsti heimili þeirra í Kópavogi laust til langtímaleigu á samfélagsmiðlum í gær.

Beggi staðfesti í samtali við Vísi að parið hefði hætt saman í byrjun árs. Hildur væri nú að leita að leigjendum í íbúðina þar sem hún muni eyða miklum tíma erlendis á næstunni.

„Í verulega stuttu máli erum við á mismunandi vegferð í lífinu. Eftir langan tíma, vangaveltur og mörg samtöl töldum við best fyrir okkur bæði að láta leiðir skilja. Þetta er búið að vera verulega sársaukafullt ferli en þrátt fyrir það höfum við gert þetta allt saman mjög fallega. Mér þykir rosalega vænt um Hildi og vona innilega að hún blómstri í lífinu,“ segir Beggi.

Beggi heldur úti vinsæla hlaðvarpinu 24/7, ásamt því að vera í doktorsnámi í sálfræði. Hann gaf út bókina Tíu skref í átt að innihaldsríkara lífi og er hann einn vinsælasti fyrirlesari landsins.

Þau Beggi og Hildur Sif hafa bæði verið áberandi á samfélagsmiðlum og voru þau til að mynda bæði bloggarar á Trendnet um skeið.

Hildur Sif heldur úti vinsælli Instagram-síðu og er hún meðlimur LXS-áhrifavaldahópsins. Hún er reynslumikil á sviði samfélagsmiðla og hefur hún meðal annars starfað sem samfélagsmiðlastjóri fyrirtækja.


Tengdar fréttir

„Þetta var eitthvað sem ég þurfti að gera“

Bergsveinn Ólafsson var knattspyrnumaður og sálfræðinemi þegar hann tók meðvitaða ákvörðun að breyta venjum og taka upp nýjar. Í dag er hann hættur í fótbolta og hefur hann helgað lífi sínu að hjálpa öðrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.