Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki viljað veita nákvæmar upplýsingar um skotvopnið í árásinni en sjónarvottur lýsti því þannig að að þetta hafi litið út eins og til dæmis MP5 vélbyssa.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir aðeins að skotvopnið sé ekki löglegt á Íslandi.
„Þetta er ekki hríðskotabyssa. En útlitið getur blekkt fólk, ég get ekki farið nánar út í það hvers konar skotvopn er um að ræða á þessu stigi,“ sagði Margeir.
Öruggar heimildir fréttastofu herma hins vegar að um sé að ræða þrívíddarprentaða byssu - en slíkt er ólöglegt hér á landi og raunar víða um heim. Það er ekki þar með sagt að vopnið sé prentað hér á landi; því getur verið smyglað inn.
Þrívíddarprentuð vopn geta sýnst öflugri en þau eru. Stærri vopn geta þannig haft virkni minni skammbyssa. Í umfjöllun Vice hér að neðan má sjá hve langt þessi tækni er komin vestanhafs.
Rannsókn málsins miðar að sögn lögreglu vel. Tveir verða áfram í gæsluvarðhaldi en upphaflega voru þrír handteknir, allir um tvítugt. Á meðal þess sem er til skoðunar er hvort málið tengist skipulagðri glæpastarfsemi.
„Þetta er á meðal þess sem við skoðum en fljótt á litið sýnist okkur það ekki vera, klárlega ekki. Þetta sé bara á milli einstaklinga sem þarna er um að ræða,“ segir Margeir.
Tugur lögreglumanna vopnaðist - ráðherra skoðar rafbyssur
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn lýsti því í samtali við fréttastofu í gær að um tugur almennra lögregluþjóna hafi vopnast við aðgerðirnar um helgina.
„Það er heimild yfirmanns sem heimilar vopnun og þá er sendur kóði til að opna vopnakistur í bílum. Þetta getur gerst bara á nokkrum mínútum og gekk mjög vel í nótt, eins og líka á fimmtudaginn,“ sagði Grímur.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur lýst áhyggjum af þróuninni og ræddi það í Bítinu á Bylgjunni í morgun að vopna lögregluna hugsanlega með rafbyssum. Í því efni vísaði hann til nýlegrar norskrar skýrslu, sem hann hyggist kynna fyrir Íslendingum.
„Þetta sé í raun og veru góð ráðstöfun gagnvart öllum, þ.e. að oft sé hægt að beita þessu í stað þess að beita því sem við köllum skotvopn. Reynslan af þessu sé mjög góð hjá þeim lögregluyfirvöldum sem hafa þessar heimildir og Norðmenn eru í þessari vegferð núna, að heimila þetta,“ segir Jón.