Að stela landi og eyða þjóð. Má það bara? Guðrún Eiríksdóttir skrifar 2. febrúar 2022 09:30 Kaþólikkar hafa átt undir högg að sækja í gegnum aldirnar eins og allir vita. Þá hefur lengi dreymt um sitt eigið ríki þar sem þeir geta lifað í friði og iðkað sína trú, eins og guð hafði víst lofað þeim fyrir löngu. Kaþólikkarnir biðu þolinmóðir lengi vel en í lok 19. aldar voru nokkrir þeirra orðnir langþreyttir og vildu fara að eignast sitt guðs lofaða land. Sagnfræðirannsóknir þessa tíma sönnuðu svo það sem þeir höfðu lengi haldið fram, að hinir fornu írsku papar voru í raun kaþólskir munkar, en þetta þýddi að þeir gátu gert tilkall til lítillar eyju í norður-Atlantshafi. Því eins og allir vita höfðu paparnir fundið þennan eyjuræfil fyrstir. Þessi eyja átti reyndar ekkert í sér sjálf á þessum tíma, var dönsk nýlenda en Danirnir voru orðnir hálfleiðir á henni. Eyjarskeggjarnir voru orðnir uppivöðslusamir og heimtuðu sjálfstæði, kunnu samt ekkert nema veiða fisk, skrifa sögur og drekka brennivín. Þessi hópur óþolinmóðra öfga-kaþólikka gat hins vegar beitt sannfæringamætti sínum á Danina, lofuðu að biðja sérstaklega fyrir þeim í öllum sínum bænum auk þess sem Danir fengju ríflega greitt frá Vatíkaninu með gulli og heilögu vatni. Dönum leist nú ekkert illa á þetta, voru reyndar búnir að lofa Eyjarskeggjum sjálfstæði en þeir voru bara svolítið minni máttar og ekki gátu þeir borgað fyrir sig með gulli! Kaþólikkar fóru því að flykkjast til eyjunnar hvaðanæva úr heiminum. En svo skall á heimsstyrjöld. Kaþólikkar voru stráfelldir um álfuna alla, biðu afhroð í þessu hörmulega stríði og í stríðslok verður það að viðurkennast að flestar þjóðir voru með blóðbragð í munninum yfir að hafa látið þetta ganga svo langt. Var ekki hægt að redda málunum með að gefa þeim bara land einhvers staðar? Gætu þeir ekki bara verið þar í friði og allir sáttir? Hvað með þessa eyju þarna, voru Danir ekki bara til í smá díl? Eftir smá þrýsting frá Bandaríkjunum (ekki vildu þeir að kaþólikkar færu að flykkjast þangað í hrönnum) og stuðning Sameinuðu Þjóðanna, þá varð það úr að kaþólikkar lýstu yfir sjálfstæði á eyjunni þann 17. Júní 1944 og stofnuðu Kaþrael. Stærstu þjóðir heims kepptust um að óska þeim til hamingju með landið sitt, þetta væri stórkostlegur áfangi réttlætis. Eyjarskeggjar voru ekki allskostar sáttir enda höfðu þeir búið þarna öldum saman og líkað ágætlega. Höfðu heldur ekkert í önnur hús að venda svosem. Mótmæltu kröftuglega og skoruðu kaþólikkana á hólm. En hvað höfðu Eyjarskeggjar í hina herskáu guðs menn, sem höfðu stuðning ekki bara guðs heldur stórveldanna og páfans. Eyjarskeggjar flúðu á flekunum sínum flestir til Grænlands en einhverjir náðu til Jan Mayen og Færeyja. Þar búa þeir enn í tjöldum og snjóhúsum, enda ríkisfangslausir og mega hvergi vera. Þeir sem fóru hvergi náðu að verja Vestfirðina sem sína auk landræmu kringum Egilsstaði. Þarna búa þeir en þó ekki sem frjálsir menn þar sem kaþraelski herinn hefur hernumið meira að segja þessi svæði, þrátt fyrir að hafa lofað öllum heiminum að leyfa aumingja Eyjarskeggjunum að vera þarna í friði. Þeim Eyjarskeggjum sem flúðu var bannað að koma tilbaka til eyjunnar, þetta land tilheyrði nú kaþólikkunum og ekkert pláss lengur. Þeir sem eftir voru sættu niðurlægjandi meðferð Kaþraela. Vestfjarðarbúar mega enn þola það að vera bornir úr húsum sínum ef Kaþraelarnir vilja yfirtaka húsin þeirra, allir vita jú hvað fiskimiðin eru drjúg þar í kring og að sjálfsögðu ásælast Kaþraelar landið allt. Ennfremur hafa þeir hafa byggt háan múr sem skiptir Vestfjarðarsvæðinu niður í afmörkuð svæði sem torveldar allar samgöngur Eyjarskeggjanna. Þeir sem búa þar og á Egilsræmunni eru algjörlega háðir Kaþraelum um öll aðföng, vatn, rafmagn og heilbrigðisþjónustu. Eyjarskeggjar mega ekki ferðast frá Egilsræmu á Vestfirði og mega í raun ekki ferðast neitt. Geta þó fengið vinnu við að byggja hersetuhús Kaþraela á hernumdu svæðunum, sem auðvitað er ólöglegt. Kaþraelskir hermenn hafa viðurkennt opinberlega að fá ógrundaðar skipanir um að leita á öllum Eyjarskeggjum hvenær sem þeir sjá þá, draga þá út um nætur og leggja hemili þeirra í rúst. Ef kaþólikkar utanúr heimi vilja setjast að á td Vestfjörðum eru Eyjarskeggjar dregnir út úr húsum sínum og húsið þar med kaþólikkans. Hátæknilegt eftirlitskerfi hefur verið sett upp á Vestfjörðum til að fylgjast vel með og kortleggja allar ferðir Eyjarskeggja. En hvað segir alþjóðasamfélagið? Má þetta bara? Nokkrir mannréttindahópar, sem og Sameinuðu Þjóðirnar, hafa reynt að hreyfa við mótmælum sem eru kveðin niður um leið, enginn þolir þetta endalausa kaþólikkahatur. Eru þeir ekki búnir að þola nóg, eftir heimsstríðið og ofsóknir gegnum aldirnar? En hvað með Eyjarskeggjana? Þeir geta nú bara sjálfir sér um kennt, voru með skæting í byrjun og alltaf eitthvað að kasta snjóboltum í kaþraelsku skriðdrekana. Sem er augljóst merki um kaþólikkahatur, það skilja allir. Eiginlega getum við sagt að þeir hafi byrjað, kaþólikkarnir komu auðvitað bara með guðs friði að sækja land sem þeir áttu frá því paparnir fundu það. Þessir Eyjarskeggjar þurfa bara að hætta að vera með uppsteyt, hlýða aðeins betur og helst bara hætta að vera til. Það er öllum sama hvort eð er, hver nennir að pæla í einhverjum Eyjarskeggjum sem höfðu búið í landinu öldum saman. Gátu þeir borgað fyrir sig með gulli og guðs blessun? Þeir geta bara sjálfum sér um kennt. Hverjir? Kenna sér um hvað? Nú þessir Eyjarskeggjar þarna sem voru víst til einhvern tímann… voru samt bara eitthvað að þvælast fyrir… Hvaða Eyjarskeggjar? Höfundur er almennur skurðlæknir og efnafræðingur. Í þessari frásögn er stuðst við raunverulega atburði en nöfnum á helstu þátttakendum hefur verið breytt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Landlæknir veldur skaða Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Kýld niður í kjördæmaviku Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Skoðun JL húsið og að éta það sem úti frýs… Sveinn Hjörtur Guðfinnsson Skoðun Vilja Grafarvogsbúar þéttingu meirihlutans í Reykjavík? Diljá Mist Einarsdóttir,Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda Heiðrún Björk Gísladóttir Skoðun Stenzt ekki stjórnarskrána Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Nýsköpun án framtíðar? Erna Magnúsdóttir,Eiríkur Steingrímsson Skoðun Úmbarassa-sa Sævar Helgi Lárusson Skoðun Palestína, háskólar og (af)nýlenduvædd rými Jovana Pavlović Skoðun Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Hvert stefnirðu?“ Arna Stefanía Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þetta er allt að koma... Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Mörkin lögmannsstofa: Áskorun til núverandi stjórnarmanna Björn Thorsteinsson skrifar Skoðun JL húsið og að éta það sem úti frýs… Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Palestína, háskólar og (af)nýlenduvædd rými Jovana Pavlović skrifar Skoðun Nágrannar óskast! Embla Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Tími er ekki óþrjótandi auðlind Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þverpólitískur vilji fyrir brotthvarfi óþarfa flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Kýld niður í kjördæmaviku Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Frá Félagi hafnarverkamanna á Íslandi Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Úmbarassa-sa Sævar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Vilja Grafarvogsbúar þéttingu meirihlutans í Reykjavík? Diljá Mist Einarsdóttir,Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Útrýmum fátækt á Íslandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Stenzt ekki stjórnarskrána Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýsköpun án framtíðar? Erna Magnúsdóttir,Eiríkur Steingrímsson skrifar Skoðun Landlæknir veldur skaða Lárus Sigurður Lárusson skrifar Skoðun Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda Heiðrún Björk Gísladóttir skrifar Skoðun Tekst Samfylkingunni að virkja lýðræðið - Tekst henni að færa kjósendum aukið vald Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Ný Selfossbrú yfir Ölfusá – bruðl eða skynsemi? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Það er þetta með þorpið Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Kostir gamaldags samræmdra prófa Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Ábyrgð stjórnenda á netöryggi og NIS2 Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Ég skvetti málningu á bandaríska sendiráðið en hér er opið bréf til utanríkisráðherra Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar Skoðun Framtíðarkvíði er ekki gott veganesti Sigurður Páll Jónsson skrifar Sjá meira
Vilja Grafarvogsbúar þéttingu meirihlutans í Reykjavík? Diljá Mist Einarsdóttir,Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun
Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir Skoðun
Skoðun Þverpólitískur vilji fyrir brotthvarfi óþarfa flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Vilja Grafarvogsbúar þéttingu meirihlutans í Reykjavík? Diljá Mist Einarsdóttir,Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Tekst Samfylkingunni að virkja lýðræðið - Tekst henni að færa kjósendum aukið vald Birgir Dýrfjörð skrifar
Skoðun Ég skvetti málningu á bandaríska sendiráðið en hér er opið bréf til utanríkisráðherra Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar
Vilja Grafarvogsbúar þéttingu meirihlutans í Reykjavík? Diljá Mist Einarsdóttir,Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun
Nokkrum rangfærslum í málflutningi menningarráðherra svarað Grímur Hákonarson,Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,Hrafnhildur Gunnarsdóttir Skoðun