Viðskipti innlent

Vindlarnir snúa aftur í Björkina: „Gömul hefð sem fólk vill geta gengið að“

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Björkin hefur verið að stafla sig upp á síðkastið fyrir komandi hátíðir.
Björkin hefur verið að stafla sig upp á síðkastið fyrir komandi hátíðir. vísir/vilhelm

Tóbaks­verslunin Björkin er aftur farin að selja vindla eftir rúm­lega hálfs árs hlé. Margir hafa velt fyrir sér hvort verslunin sé að loka dyrum sínum endan­lega eftir 94 ára rekstur en eig­andinn segir að svo sé ekki þó breytingar á rekstrinum séu væntan­legar á næsta ári.

Hann vill ekki fara nákvæmlega út í hverjar þær breytingar verða en segir að þær verði kynntar snemma næsta árs.

En þangað til verður Björkin áfram gamla góða vindlaverslunin.

Búðin hefur verið tóm og var lokað í stutta stund í síðustu viku. Hún hefur nú opnað á ný og mun þar allt fyllast af vindlum á næstu dögum. 

Þetta skilti blasti við þeim sem ætluðu að kaupa sér vindla í Björkinni í lok vikunnar. vísir/vilhelm

„Ég þurfti að tæma búðina af öllum vörunum til að rýmka um fyrir vindlunum nú í desember. Og það er bara gert til að viðhalda gömlu góðu þjónustunni. Þetta er gömul hefð sem fólk vill geta gengið að og ég ætla nú ekki að vera hataðasti maður jólanna,“ segir Jóhann Thulin Johansen eigandi verslunarinnar, sem flestir þekkja einfaldlega sem Túlla, léttur í bragði.

Tæmdu búðina til að rýmka til fyrir vindlum

Það hefur líklega ekki farið fram hjá föstum viðskiptavinum Bjarkarinnar að búðin var farin að færa sig í túristalegri átt, með sölu á ýmsum túristavörum þó áfram væri þar tenging við tóbaksvörur. 

Í vor hætti hún síðan að bjóða upp á vindla. 

„Þetta er bara búin að vera smá pása síðan í vor, svona endurskipulagning á fyrirkomulagi búðarinnar. Þannig ég er búinn að vera tóbakslaus síðan í apríl eða maí. En sem betur fer tókst að snúa málinu þannig að það verður hægt að ganga að vindlum hjá okkur allavega út desember,“ segir Túlli

Á meðan ekki var hægt að fá vindla í tóbaksversluninni var dyggum viðskiptavinum Bjarkarinnar beint að annarri verslun í Skútuvogi.

Túlli vill ekki gefa upp hvaða breytingar séu í vændum á rekstrinum en lofar því að hægt verði að ganga að gömlu góðu Björkinni með sínum vindlum fram yfir hátíðirnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×