Lífið

Meistaraflokkur kvenna hjá KR styrkti Barnaspítala Hringsins

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
KR-ingar færðu Barnaspítala Hringsins gjöf.
KR-ingar færðu Barnaspítala Hringsins gjöf.

Meistaraflokkur kvenna hjá KR færði Barnaspítala Hringsins í gær fallega gjöf.  Knattspyrnukonurnar mættu færandi hendi á sjúkrahúsið með leikföng, bækur og fleira fyrir börnin sem þar dvelja yfir hátíðarnar. Þær hvetja önnur lið til að gera slíkt hið sama.

„Meistaraflokkur kvenna hjá KR vill sýna að lífið er ekki bara fótbolti og að á þessum erfiðu tímum sem við höfum gengið í gegnum þetta árið skiptir máli að standa saman, hjálpast að og reyna að gera heiminn örlítið betri,“ segir í tilkynningu um söfnunina.

„Með þá hugsjón tóku leikmenn sig saman og söfnuðu pening fyrir bókum, leikföngum og nauðsýnlegu dóti sem þarfnast vel inn á Barnaspítala Hringsins. Þar fóru fulltrúar liðsins, Rebekka Sverrisdóttir og Laufey Björnsdóttir ásamt þjálfara kvennaliðsins, Christopher Harrington og Friðgeir Bergsteinssyni sem hjálpaði til með verkefnið í heimsókn inni á Barnaspítala Hringsins, við Hringbraut.“

KR-ingar færðu Barnaspítala Hringsins gjöf.

Á Barnaspítala Hringsins dvelja mörg börn mánuðum saman. Á einni hæðinni er leikskóli og þar starfa líka kennarar. Ef börn hafa ekki tök á að fara á leikskólann færir leikskólastjórinn þeim leikföng upp á herbergi þeirra til að stytta þeim stundir. Á dagdeildum eru líka leikföng og bækur á leikstofunum fyrir þau börn sem koma inn í rannsóknir, lyfjagjafir og læknisskoðanir.

Meistaraflokkur Kvenna afhendtu Barnaspítala Hringsins gjöfina í gær, mánudaginn 6. desember.

„Barnaspítalinn tók fagnandi á móti gjöfjunum og liðið fékk í staðinn viðurkenningarskjal sem er að mörgu leyti betri en nokkur annar bikar. Við vonum innilega að gjafirnar nýtist vel og hvetjum önnur lið og allt fólk til að gefa af sér til góðra málefna.“

KR-ingar færðu Barnaspítala Hringsins gjöf.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.