Innlent

Fyrra smit í­gildi einnar sprautu

Árni Sæberg skrifar
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Þeir sem hafa fengið bæði tvo skammta bóluefnis og Covid-19 munu ekki fá örvunarskammt að svo stöddu. Þetta sagði Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir í Reykjavík síðdegis.

„Nú er kúnstin að telja upp að þremur, ef þú hefur fengið einu sinni Covid og tvær bólusetningar þá ertu kominn með þrjú stykki,“ segir Ragnheiður.

Þá segir hún að þeir sem fengu snemma Covid-19 og því enga bólusetningu eigi tvo skammta bóluefnis inni.

Í samtali við Vísi segir hún jafnframt að bólusetning með bóluefni Janssen teljist einungis sem ein sprauta þó henni hafi upphaflega ætlað að vera fullnaðarbólusetning.

Því munu þeir sem fengið hafa Janssen og einn örvunarskammt með mRNA bóluefni eiga kost á frekari örvun. Það verði þó ekki fyrr en í febrúar eða mars á næsta ári.

Bólusetning hafi gengið ljómandi vel í dag

Ragnheiður Ósk segir 9.700 manns hafa verið boðaða í örvunarbólusetningu í dag og að um 6.500 manns hafi mætt. Dagurinn hafi gengið glimrandi vel og aðsókn verið nokkuð góð miðað við að um örvunarbólusetningu hafi verið að ræða. Hún segir mætingu hingað til ekki hafa verið góða í örvunarbólusetningu.

Stefnt er að því að bólusetja 120 þúsund manns næstu fjórar vikurnar, þeir sem mættu í dag voru sextíu ára og eldri, fólk með undirliggjandi sjúkdóma og starfsmenn hjúkrunarheimila. „Svona bland í poka“ segir Ragnheiður Ósk.

Fjöldabólusetningar munu fara fram í Laugardalshöll á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum. Þá verður opið hús á fimmtudögum og föstudögum þar sem einn eða tveir hjúkrunarfræðingar munu sinna bólusetningum þeirra sem þurfa bólusetningu í bíl, til dæmis.

Hlusta má á viðtalið við Ragnheiði Ósk í spilaranum hér að neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×