Talibanar segjast hafa unnið aftur norðurhéruð Kjartan Kjartansson skrifar 23. ágúst 2021 11:44 Talibani með hríðskotabyssu í Kandahar-héraði. Vísir/EPA Talsmaður talibana í Afganistan segir að þeir hafi náð aftur þremur héruðum í norðanverðu landinu sem uppreisnarhersveitir tóku í síðustu viku. Hersveitir andsnúnar talibönum eru enn í Panjshir-dal í Norður-Afganistan.
Bano, Deh Saleh og Pul e-Hesar í Baghlan-héraði féllu í hendur uppreisnarhersveita í síðustu viku en það voru fyrstu merkin um mögulega vopnaða andspyrnu gegn yfirráðum talibana frá því að þeir sölsuðu undir sig höfuðborgina Kabúl 15. ágúst. Talibanar endurheimtu svæðin í dag og hafa tekið sér stöðu í kringum Panjshir-dal samkvæmt talsmanni samtakanna. Í dalnum halda til hersveitir sem eru hliðhollar Ahamd Massoud, syni fyrrum skæruliðaleiðtoga sem barðist gegn Sovétríkjunum á sínum tíma. Á meðal þeirra eru leifar stjórnarhersins og sérsveita, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Massoud hefur krafist viðræðna við talibana um einhvers konar samsteypustjórn en hefur heitið því að verjast ef þeir reyna að taka Panjshir-dal. Ekki hefur komið til átaka í dalnum ennþá þrátt fyrir að talibanar segist hafa sent hundruð liðsmanna sinna þangað. Talsmaður talibana heldur því fram að ætlunin sé að leysa ágreininginn á friðsaman hátt.
Afganistan Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira