Innlent

Þú getur nálgast niðurstöðu um smitið áður en símtalið berst

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stór hluti þjóðarinnar hefur farið í sýnatöku vegna Covid-19, hvort sem er á Suðurlandsbraut í Reykjavík eða annars staðar á landinu.
Stór hluti þjóðarinnar hefur farið í sýnatöku vegna Covid-19, hvort sem er á Suðurlandsbraut í Reykjavík eða annars staðar á landinu. Vísir/RagnarV

Undanfarinn mánuð hafa á bilinu eitt þúsund til sex þúsund manns farið í sýnatöku vegna einkenna eða sóttkvíar hjá heilsugæslum víða um land. Biðin eftir niðurstöðu getur reynst mörgum löng. Þeir sem reynast smitaðir eiga möguleika á að vita niðurstöðuna nokkru áður en símtalið berst frá göngudeild Landspítalans.

Stóri meirihlutinn fær SMS um að þeirra niðurstaða í Heilsuveru undir liðnum Samskipti. Þar bíða skilaboðin sem margir hafa andað léttar yfir:

Þú greindist ekki með COVID-19 sjúkdóminn. Þessi niðurstaða útilokar ekki að þú fáir sjúkdóminn síðar. Ef þú veikist seinna með flensulík einkenni, hita, beinverki og hósta þarf að meta hvort þörf er á nýrri sýnatöku.

Litli minnihlutinn sem reynist smitaður fær ekki SMS-skilaboð með niðurstöðunni. Þessi hópur fær símtal frá smitrakningarteyminu úr númerinu 444-2505 með tíðindunum: Þú ert með Covid-19. Þó er hægt að komast fyrr að niðurstöðunni eins og lesandi Vísis komst að á dögunum.

Vottorð birtist í Heilsuveru

Þegar það liggur fyrir að fólk er smitað af Covid-19 birtist vottorð þess efnis í Heilsuveru og hefur gert í lengri tíma. Þessi vottorð birtast allajafna áður en smitrakningateymið, hvar hefur verið mikið álag undanfarið, hringir símtalið.

Á myndinni að ofan má sjá hvar Covid-19 vottorðið birtist í Heilsuveru, undir Covid-19, vottorð.

Á myndinni má sjá hvar finna má vottorð vegna Covid-19 smits í Heilsuveru.Skjáskot úr Heilsuveru

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir í samtali við Vísi að þegar jafnmargir greinist og verið hefur tilfellið undanfarnar vikur þá geti tekið tíma fyrir göngudeildina að hringja símtalið. Covid-vottorð geti því vel verið komið í Heilsuveru nokkru áður en símtalið berst.

Já, ég veit

Þannig var það í tilfelli einstaklings sem vakti athygli á þessu við fréttastofu. Sá var meðvitaður um Covid-19 smit, eitthvað sem hann hafði sterkan grun um, þremur klukkustundum áður en símtalið barst. Þegar göngudeildin hringdi til að tilkynna um smitið var svarið: „Já, ég veit.“

Svarið kom starfsmanni göngudeildar á óvart en fékk svo skýringuna. Vottorðið fyrir Covid-19 smit var löngu lent í Heilsuveru hvar viðkomandi hafði verið á Refresh-takkanum, ef svo má segja, enda sannfærður um að vera smitaður.

Í framhaldi af símtali Covid-göngudeildar fá smitaðir svo símtal frá smitrakningu þar sem farið er yfir hvern hinn smitaði hitti og metið hverjir þurfa að fara í sóttkví.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×