Erlent

Tvístruðu gleðigöngu í Istanbúl með táragasi

Kjartan Kjartansson skrifar
Tyrkneski lögreglumenn leiða burt þátttakanda í gleðigöngunni í Istanbúl í dag.
Tyrkneski lögreglumenn leiða burt þátttakanda í gleðigöngunni í Istanbúl í dag. AP/Emrah Gurel

Tyrkneska lögreglan skaut táragasi á fólk sem tók þátt í gleðigöngu hinsegin fólks í Istanbúl í dag. Á þriðja tug manna voru handteknir en borgaryfirvöld höfðu lagt bann við hátíðinni.

Reuters-fréttastofan segir að lögreglumenn í óeirðarbúnaði hafi ýtt þátttakendum í göngunni og dregið þá í burtu. Sumir þátttakendanna hafi veifað regnbogafánanum sem er tákn réttindabaráttu hinsegin fólks.

Gleðigöngur hafa verið bannaðar í Istanbúl frá árinu 2015 vegna „öryggis almennings,“ að sögn AP-fréttastofunnar. Fyrir það tóku þúsundir manna þátt í göngunni árlega. Í ár var gangan bönnuð að nafninu til vegna sóttvarnareglna í kórónuveirufaraldrinum.

Samkynhneigð er ekki ólögleg í Tyrklandi en AK-flokkur Receps Erdogan forseta aðhyllist íhaldssama íslamstrú, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×