Bein útsending: Með allt í fanginu - hegðun viðskiptavina stórmarkaða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. maí 2021 11:21 Valdimar tekur til máls klukkan 12. Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um kauphegðun. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.
Valdimar hefur um árabil stundað rannsóknir á kauphegðun út frá ýmsum mælikvörðum. Í erindinu verður fjallað um mikilvægi þess að gera rannsóknir á neytendahegðun í verslunum, bæði þeim hefðbundnu sem og netverslunum, ekki einungis út frá rekstrarlegum forsendum, heldur einnig út frá þáttum eins og heilbrigði og sjálfbærni. Kauphegðun er að breytast. Gömul verslunarlíkön, niðurstöður og aðferðafræði gilda ekki lengur og verslanir þurfa að aðlagast og rannsaka hvort að þær geti sinnt neytendum betur með snjöllum lausnum. Í erindinu mun Valdimar fara í gegnum ferðalög neytenda um verslanir og hvernig þau eru rannsökuð, meðal annars með myndavélum, greiningartækjum og tilraunum. Ljóst er að ábyrgð bæði verslana og viðskiptavina er mikil. Hverju er ýtt að okkur og hvað erum við að ýta undir? Rætt verður um mikilvægi innkaupakerra, mikilvægi dóma og sölu frá öðrum neytendum, verðlagningu, dekkun verslunar, mikilvægi tíma og mælinga á gönguhraða, lengd innkaupa og hagkvæmni og af hverju verslanir sóa tíma neytenda. Neytendur velja og þeirra val verður að skilja.
Háskólar Neytendur Verslun Mest lesið Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ Atvinnulíf Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira