Þarftu að spara orkuna? Hér eru nokkur ráð frá iðjuþjálfum Aðalheiður Pálsdóttir, Jóhanna Elíasdóttir og Þóra Leósdóttir skrifa 20. febrúar 2021 07:01 Það er vel þekkt að fólk, sem hefur fengið alvarlegar veirusýkingar getur þurft að glíma við einkenni af ýmsu tagi í vikur og jafnvel mánuði í kjölfarið. Vísbendingar eru um að 10-20% þeirra sem hafa greinst með COVID-19 sjúkdóminn búi við langvinn eftirköst þrátt fyrir að hafa ekki veikst alvarlega. Þetta geta verið fjölbreytt einkenni eins og hósti, hiti, verkir víðs vegar um líkamann, þreyta og vitræn truflun oft kölluð heilaþoka. Talið er að veiran valdi bólguferlum vegna sterkra viðbragða í varnarkerfum líkamans og að þessar bólgur hafi langvinn áhrif. Mikil þreyta og orkuleysi gerir það að verkum að fólk á erfitt með að sinna daglegri iðju eins og að baða sig, fara á salerni, klæða sig, útbúa mat og borða, hvað þá að sinna húsverkum eða kaupa inn. Minnsta hreyfing, eða bara það að komast um heima hjá sér getur hæglega verið viðkomandi ofviða. Þegar orkan er í lágmarki er mikilvægt er að spyrja sig nokkurra grundvallarspurninga: ·Hvað þarf ég að gera? ·Hvað langar mig að gera, hvað er mikilvægt fyrir mig? ·Hvað getur beðið? ·Hver getur aðstoðað mig? Iðjuþjálfar starfa með fólki, á öllum aldri sem býr við skerta færni og þátttöku vegna heilsubrests, skorts á tækifærum eða annarra hindrana í aðstæðum sínum. Þeir hafa sérþekkingu á samspili iðju, einstaklings og umhverfis og veita skjólstæðingum þjálfun og ráðgjöf með það að markmiði að efla færni þeirra og sjálfstæði. Mikilvægt er að þau sem kljást við langvinn eftirköst vegna COVID-19 fái nauðsynlega endurhæfingu, þar með talið iðjuþjálfun til að bataferlið gangi vel. Einnig er brýnt að þjónusta iðjuþjálfa sé aðgengileg á næstu heilsugæslustöð eða hjá velferðarþjónustu sveitarfélaga. Margt er hægt að gera til að styðja við batann eftir veikindi af völdum COVID-19, til dæmis að breyta um aðferðir og aðlaga umhverfið heima við. Iðjuþjálfar á Landakoti hafa þýtt og staðfært leiðbeiningar frá breska iðjuþjálfafélaginu og gefa hér nokkur dæmi um það hvernig hægt er að spara orku og draga úr áreynslu við dagleg verk og athafnir. Leiðbeiningarnar „Leiðir til að spara líkamsorkuna“ má nálgast í heild sinni á heimasíðu Landspítala, www.landspitali.is. Taktu þér tíma Að tempra hraðann við framkvæmd verka og athafna gerir það auðveldara að ljúka þeim. Betra er að hætta um leið og þreytan gerir vart við sig í stað þess að keyra sig alveg út, því þá tekur líka lengri tíma að jafna sig. Best er að fara mátulega geyst og hvíla sig á milli. Ráðleggingar: • brjóttu athafnir niður í smærri þrep og dreifðu þeim yfir daginn • gerðu ráð fyrir hvíld inn á milli, það er lykillinn að því að hlaða orkuna • skipuleggðu 30-40 mínútna hvíld milli athafna • sestu niður og hvíldu þig þar sem það er mögulegt Skipuleggðu þig Mikilvægt er að skipuleggja sig vel. Ef mæði eða þreyta sækir að er gott að dreifa athöfnum yfir daginn í stað þess að gera allt í einu. Hægt er að fara í bað eða sturtu að kvöldi til því þá er ekki jafn mikið fram undan eins og í byrjun dags. Einnig má til dæmis forðast að þvo þvott og kaupa inn sama daginn. Ráðleggingar: • hafðu við höndina allt sem þarf áður en byrjað er á verki • notaðu hjálpartæki og leitaðu í því sambandi til fagfólks eins og iðjuþjálfa • fáðu aðstoð fjölskyldu og vina Forgangsraðaðu Sumar daglegar athafnir eru minna nauðsynlegar en aðrar. Gott er að vega það og meta: Hvað þarf ég að gera í dag eða hvað langar mig að gera? Hvað get ég látið bíða? Hvað get ég beðið einhvern annan um að gera fyrir mig? Ráðleggingar: • ekki halda niðri andanum meðan þú glímir er við eitthvað sem tekur á • forðastu sem mest að toga, lyfta, beygja, teygja og snúa • reyndu að ýta eða renna hlutum í stað þess að lyfta þeim • beygðu þig í hnjám frekar en mjöðmum þegar þú þarft að ná í hluti Nokkur dæmi um verk og athafnir Að baða sig: Sparaðu orkuna með því að fá aðstoð við bað eða sturtu. Í byrjun bataferlisins er gott að fara ekki í bað eða sturtu daglega heldur þvo sér frekar við vaskinn. Forðastu að hafa vatnið of heitt og tryggðu góða loftræstingu. Taktu þér tíma og hvíldu þig inn á milli. Betra er að sitja en standa við að baða sig, þurrka og klæða. Gott er að nýta sturtustól eða baðbretti, handföng á vegg geta bætt öryggi og auðveldað verkið. Notaðu áhöld með löngu skafti. Gott er að fara í léttan baðslopp úr mjúku efni, þá er minni þörf á að þurrka líkamann með handklæði. Að snyrta sig: Gott er að sitja á stöðugum stól eða kolli þegar þú þværð þér, burstar tennur eða greiðir hárið. Hafðu við höndina allt snyrtidót sem á að nota og hafðu spegilinn í augnhæð hvort sem þú situr eða stendur. Þurrsjampó getur verið heppilegra en venjulegt. Notaðu rafmagnstæki svo sem rafmagnstannbursta eða rafmagnsrakvél ef þess er nokkur kostur. Að klæða sig: Áætlaðu nægan tíma og sittu á stól við að fara í föt, sokka og skó. Klæddu þig fyrst að neðan og síðan að ofan. Hvíldu þig á milli og andaðu jafnt allan tímann. Mikilvægt er að hafa fötin innan seilingar og forðast beygjur og teygjur. Hægt er að nota hjálpartæki eins og griptöng, sokkaífæru og langt skóhorn. Forðastu fatnað sem þarf að fara yfir höfuð. Heppilegra er að nota föt sem eru opin að framan, víð og úr mjúku efni. Hægt er að endurraða í fataskápnum þannig að auðvelt sé að finna fötin eða fá aðstoð við það. Að elda mat: Taktu þér góðan tíma og dreifðu matargerðinni yfir daginn. Til dæmis er hægt að undirbúa að morgni, elda í hádeginu og hita upp um kvöldið. Reyndu að sitja við matseldina og taktu þér hvíld inn á milli. Mundu að hafa allt innan seilingar. Gott er að elda stóra skammta og frysta hluta til að eiga síðar. Einnig er skynsamlegt að velja rétti sem ekki krefjast flókins undirbúnings og tíma. Þegar þrekið er lítið þá getur verið gott að kaupa tilbúna rétti eða fá aðstoð við eldamennskuna. Þóra Leósdóttir er formaður Iðjuþjálfafélags Íslands. Aðalheiður Pálsdóttir og Jóhanna Elíasdóttir eru iðjuþjálfar á Landakoti Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilsa Heilbrigðismál Mest lesið Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. Skoðun Palestína í Eurovision Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir Skoðun Halldór 17.05.2025 Halldór Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Palestína í Eurovision Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hversu lítill fiskur yrðum við? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðin vill eitt, Kristrún annað Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Lélegir íslenskir læknar...eru ekki til! Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Þriðji kafli: Skálmöld Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Valkyrjurnar verða að losa okkur við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Söngur Ísraels og RÚV Ingólfur Gíslason. skrifar Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Uppiskroppa með umræðuefni í málþófi? Talið um Gaza! Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Kærleikurinn pikkaði í mig Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Friðun Grafarvogs Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Torfærur, hossur og hristingar! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun NÓG ER NÓG – Heilbrigðiskerfið er í neyðarástandi Ásthildur Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Við munum aldrei fela okkur aftur Kári Garðarsson skrifar Skoðun Er Kópavogsbær vel rekinn? Bergljót Kristinsdóttir skrifar Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Um sjónarhorn og sannleika Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við? Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Málþóf og/eða lýðræði? Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar? Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð í beinni Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Atvinnufrelsi! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Sjá meira
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Skoðun Þjóðin sem selur sjálfri sér: Vangaveltur um sölu Íslandsbanka Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson skrifar
Skoðun Gigt er ekki bara sjúkdómur fullorðinna – Gigtarfélagið heldur opið hús til að fræða og styðja alla aldurshópa Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun