Skoðun

Okkar fé í Heimum

Bergur Hauksson skrifar

Warren Buffett skrifaði í hluthafabréfi sínu vegna ársins 2007 að framsýnn kapítalisti viðstaddur fyrsta flugið í Kitty Hawk hefði gert síðari fjárfestum stóran greiða með því að skjóta Orville niður. Þetta var kaldhæðin lýsing á reynslu fjárfesta af atvinnugrein sem krefst sífellt mikils fjármagns en hefur oft skilað hluthöfum litlu.

Fjárfestingar lífeyrissjóða í Play sýna að viðvörunin á enn erindi. United Silicon, kísilverið á Bakka og tilteknir sjóðir í stýringu GAMMA eru önnur dæmi um fjárfestingar sem hafa valdið verulegu tapi eða niðurfærslum. Verkefnin eru ólík, en kalla á sömu spurningu: Var áhættan rétt metin og eftirlitið nægilegt?

Slæm útkoma sannar ekki ein og sér að ákvörðun hafi verið óskynsamleg. En hún kallar á skýringar. Það dugar ekki að benda á að tapið sé aðeins lítið hlutfall heildareigna sjóðsins. Lítið hlutfall af stórum sjóði getur verið ævisparnaður fjölda fólks. Fjárhæðin segir heldur ekkert um hvort ákvörðunin hafi verið vel undirbúin eða hvort brugðist hafi verið tímanlega við þegar forsendurnar breyttust.

Lífeyrissjóðir eiga samanlagt rúman helming hlutafjár í Heimum samkvæmt hluthafalista félagsins frá 9. október. Fjárfesting í útleiguhúsnæði er annars eðlis en þátttaka í nýju flugfélagi eða uppbyggingu kísilvers. Hún er þó háð því að skuldsetning, rekstur og áhættustýring séu í lagi. Fullnægjandi tryggingavernd er þar grundvallaratriði.

Nýleg frétt RÚV um Hæstaréttardóm vegna brunans að Miðhrauni 4 í Garðabæ gefur tilefni til spurninga um þann þátt. Þar hélt eigandi FF 11, sem átti húsið með dótturfélagi Heima, því fram að Heimar hefðu vanrækt tryggingar sínar.

Í héraðsdóminum er jafnframt rakið tjónamat Verkíss þar sem vátryggingarfjárhæð eignarhluta Heima atvinnuhúsnæðis er talin lægri en raunverulegt verðmæti. Þar er lýst beitingu ákvæðis um hlutfallslegar bætur og miðað við að um 70,7% tjónsins séu bætt.

Þetta gefur skýrt tilefni til að spyrja hvers vegna vátryggingarfjárhæðin hafi samkvæmt matinu verið of lág, hver hafi átt að yfirfara hana og hvernig eftirlitinu hafi verið háttað. Umfjöllunin staðfestir ekki sjálfstætt vanrækslu tiltekins stjórnanda. En hún er nægilegt tilefni til að krefjast svara. Ekki þarf að bíða eftir dómi um persónulega ábyrgð til að spyrja hvernig farið hafi verið með tryggingamál félagsins.

Heimar eiga einnig Smáralind og margar fleiri fasteignir. Það segir ekkert eitt og sér um hvort tryggingavernd þeirra sé fullnægjandi. Það gerir hins vegar spurninguna um verklagið þeim mun mikilvægari: Hvernig tryggir félagið að vátryggingarfjárhæðir fylgi breytingum á eignunum og notkun þeirra? Hver sannreynir að það sé gert?

Stjórn og framkvæmdastjórn Heima þurfa að svara fyrir rekstur félagsins. Lífeyrissjóðirnir þurfa sömuleiðis að gera grein fyrir því hvernig þeir sinna aðhaldi sem eigendur rúmlega helmings hlutafjárins. Hafa þeir kallað eftir skýringum á tryggingaverndinni og því sem fram kemur í tjónamati Verkíss? Hafa þeir kannað hvort ástæða sé til að yfirfara sambærileg atriði annars staðar í samstæðunni?

Samkvæmt frétt RÚV er annað mál vegna brunans fyrir dómstólum, þar sem FF 11 krefur Heima um hundruð milljóna króna í skaðabætur vegna meintrar vanrækslu á brunavörnum eftir breytta notkun húsnæðisins. Ekki hefur verið dæmt um réttmæti þeirrar kröfu. Hið meinta gáleysi varðar þó einmitt kjarnann í starfsemi fasteignafélags: rekstur húsnæðis og brunavarnir þess. Það gefur sérstakt tilefni til að krefjast svara. Ef ekki er hægt að treysta á fagmennsku félagsins á því sviði sem það sérhæfir sig í, á hverju byggist þá traust lífeyrissjóðanna til þess?

Falli veruleg greiðsluskylda á félagið og verði hún ekki bætt úr tryggingum getur það rýrt verðmæti fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Það leiðir ekki sjálfkrafa til skerðingar lífeyrisréttinda minna. En tap sjóðanna minnkar eignirnar sem standa undir réttindum okkar og getur á endanum kallað á skerðingar.

Mér hefur verið skylt að greiða í ýmsa þessara sjóða. Því hlýtur að fylgja krafa um skýringar á meðferð fjárins og virkt aðhald með þeim sem fara með það. Ég get ekki valið að bera enga áhættu. Ég á hins vegar að geta krafist þess að áhættan sé metin af alvöru og að brugðist sé við þegar eftirlit eða framkvæmd bregst.

Ábyrgðin má ekki enda hjá sjóðfélaganum einum. Ef réttindi hans eru skert er tapið raunverulegt, þótt það hafi áður verið lítil prósenta í stóru eignasafni. Sá sem fer með fé annarra verður að þurfa að svara fyrir meðferð þess. Hver verður látinn gera það?

Höfundur er lög- og viðskiptafræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×