Innlent

Tals­verð rigning í kortunum og líkur á vatna­vöxtum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Úrkomuspákort Veðurstofunnar fyrir hádegið á sunnudag.
Úrkomuspákort Veðurstofunnar fyrir hádegið á sunnudag. Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands spáir allhvassri eða hvassri suðaustanátt um helgina með talsverðri rigningu sunnan- og austanlands, einkum á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum.

Því má reikna með hláku með auknu afrennsli og líkum á vatnavöxtum að því er segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Þá má búast við snörpum vindhviðum við fjöll suðvestantil á landinu í dag og víða um land á morgun.

Vegna veðurspárinnar þarf að fylgjast með hættu á bæði votum snjóflóðum og skriðuföllum, sagði í tilkynningu lögreglunnar á Austurlandi í gær.

Ofanflóðavöktun verður þannig aukin um helgina og fylgst með hvernig aðstæður þróast á Seyðisfirði þar sem stórar aurskriður féllu í desember í hamfararigningu.

„Metið verður um helgina hvort grípa þurfi til rýmingar eða annarra ráðstafana. Tilkynning vegna þessa verður á send út á þessum vettvangi á morgun milli klukkan 13 og 16,“ sagði í Facebook-færslu lögreglunnar á Austurlandi í gær. 

Seyðisfjörður: Búið er að móta varnargarða ofan við Tækniminjasafnið og Slippinn //English translation...

Posted by Lögreglan á Austurlandi on Thursday, February 11, 2021

„Í dag er spáð nokkuð hvassri austan- og suðaustanátt suðvestanlands, en björtu veðri norðantil á landinu. Úrkoma verður líklega óveruleg þar til í kvöld þegar fer að rigna um landið suðaustanvert. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost á Norður- og Austurlandi.

Á morgun er útlit fyrir hvassa suðaustanátt með rigningu syðra, en skýjuðu og þurru fyrir norðan. Hiti 2 til 8 stig.

Á sunnudag er helsta breytingin sú að það rignir líklega víða um land og sennilega talsvert eða mikið á Suðausturlandi og Austfjörðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Austan og suðaustan 10-18 m/s í dag, hvassast sunnan heiða. Léttskýjað um landið norðanvert, en dálitlar skúrir eða él suðaustantil. Hiti 1 til 6 stig, en víða 0 til 5 stiga frost á N- og A-landi. Rigning við S-ströndina í kvöld og bætir í vind.

Hvöss suðaustanátt og rigning á morgun, einkum SA-lands, en þurrt að kalla norðan heiða. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag:

Suðaustan 13-20 m/s og talsverð rigning á S-verðu landinu, en þurrt að kalla N-til. Hiti 2 til 8 stig.

Á sunnudag:

Suðaustan og austan 13-20, en hægari V-lands síðdegis. Rigning með köflum, en talsverð rigning á SA- og A-landi. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:

Sunnan 5-13 og rigning eða skúrir, en yfirleitt þurrt N- og NA-lands. Hiti 3 til 8 stig.

Á þriðjudag:

Austlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið norðan heiða. Áfram milt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×