„Vísbendingar um að veðrið skipti um gír um næstu helgi“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. febrúar 2021 07:13 Það verður áfram kalt í veðri í vikunni. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð svipuðu veðri og var um helgina að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Þar segir að í stuttu máli megi búast við austlægri átt áfram í vikunni og að áfram verði fremur kalt. Él á víð og dreif og líkur eru á því að allir landshlutar hafi fengið skammt af éljum áður en vinnuvikan er á enda. „Ef við leyfum okkur að rýna lengra fram í tímann, þá gefa spár sterkar vísbendingar um að veðrið skipti um gír um næstu helgi og þá taki við sunnanátt með hlýindum og rigningu sem einkum verður bundin við sunnanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Austlæg átt 5-13 m/s. Skýjað með köflum og þurrt að kalla, en él á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti kringum frostmark, en vægt frost norðanlands. Kólnar í kvöld. Norðaustan 3-10 á morgun, en 10-15 á Vestfjörðum. Dálítil snjókoma um landið norðanvert, en él sunnanlands seinnipartinn. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 8 stiga frost í innsveitum fyrir norðan. Á þriðjudag: Norðaustan 3-10 m/s, en 10-15 á Vestfjörðum. Él um landið norðanvert og einnig syðst á landinu. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag: Breytileg átt 5-13 og víða dálítil snjókoma eða él, en hægari vindur og úrkomulítið á Austurlandi. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst. Á fimmtudag og föstudag: Suðaustan 8-13 og él sunnantil á landinu, hiti 0 til 4 stig. Þurrt á norðurhelmingi landsins og frost 0 til 5 stig. Á laugardag: Ákveðin suðaustanátt með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Sunnanátt og rigning, en áfram úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Innlent Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Innlent Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Í sjálfheldu á eigin svölum Innlent Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Innlent Fleiri fréttir „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Lögreglan bannaði bjór á B5 Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Sjá meira