Kannast ekki við að hafa fengið boð um aðstoð frá Íslandi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. febrúar 2021 17:20 Michael Kjeldgaard, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austur-Jótlandi. Vísir/Elín Lögreglan á Austur-Jótlandi kannast ekki við að hafa fengið boð frá íslensku lögreglunni um aðstoð í tengslum við rannsóknina á morði Freyju Egilsdóttur Mogensen. Það sé þó ekki útilokað að óskað verði eftir aðstoð íslensku lögreglunnar á seinni stigum málsins.
Fréttablaðið greindi fyrst frá því fyrr í vikunni að alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hafi boðið dönsku lögreglunni aðstoð íslenskra lögregluyfirvalda við rannsókn málsins. Staðfesti Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra þetta í samtali við Fréttablaðið. Svo virðist þó sem þetta tilboð hafi ekki ratað alla leið til þess lögregluembættis sem fer með rannsókn málsins í Danmörku. Fréttastofa spurðist fyrir um það hvort lögreglan á Austur-Jótlandi hafi þegið boð íslenskra lögregluyfirvalda um aðstoð. Ekki útlokað að óskað verði eftr aðstoð síðar „Við höfum ekki fengið boð um hjálp og við höfum heldur ekki óskað eftir hjálp frá íslensku lögreglunni. Það er ekki útilokað, að við munum þegar fram líða stundir leita til íslensku lögreglunnar um hjálp til að fá bakgrunnsupplýsingar um hina látnu,” segir í svari Michael Kjeldgaard, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Austur-Jótlandi, við fyrrspurn fréttastofu. 51 árs karlmaður, fyrrverandi eiginmaður Freyju, var á miðvikudag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa orðið Freyju að bana. Hann er sagður hafa játað á sig verknaðinn er hann var leiddur fyrir dómara í vikunni. Íbúar í Malling, heimabæ Freyju, minnast hennar með hlýhug. Fréttin hefur verið uppfærð.
Danmörk Morð í Malling Íslendingar erlendis Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Sjá meira