Herinn hefur tekið völdin í Mjanmar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 1. febrúar 2021 06:24 Nokkrir af helstu leiðtogum landsins, þar á meðal Aung San Suu Kyi, hafa verið hnepptir í varðhald. Getty/Fred Dufour Herinn í Mjanmar hefur tekið yfir stjórn landsins en í nótt voru nokkrir af helstu leiðtogum landsins hnepptir í varðhald, þar á meðal Aung San Suu Kyi, sem í raun hefur leitt landið síðustu ár eftir að herinn losaði tök sín.
Í yfirlýsingu í sjónvarpi sagði herinn að neyðarlög væru komin í gildi næsta árið og völdin væru nú komin í hendur hersins. Deilur hafa verið í landinu síðustu vikur eftir kosningar í nóvember en herinn stjórnaði Mjanmar allt fram til ársins 2011 þegar samkomulag náðist við stjórnarandstöðuna um að deila völdum í landinu. Þá varð Aung San Suu Kyi leiðtogi Mjanmar þótt herinn hefði enn sterk tök á stjórninni. Í nóvember síðastliðnum vann flokkur Suu Kyi síðan stórsigur og hefði getað myndað meirihlutastjórn, en herinn vildi meina að brögð hefðu verið í tafli og hefur nú látið til skarar skríða. Flokkur Suu Kyi hefur birt yfirlýsingu þar sem landsmenn eru hvattir til að mótmæla valdaráni hersins og ríkisstjórnir víða um heim hafa fordæmt aðgerðina, þar á meðal Bandaríkin og Ástralía. Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í yfirlýsingu að úrslit kosninganna í nóvember verði virt.
Mjanmar Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Sjá meira