Innlent

Hvöss vestan­átt og gular við­varanir á Vest­fjörðum og norðan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 15 í dag, eins og það leit út í morgun.
Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 15 í dag, eins og það leit út í morgun. Veðurstofan

Útlit er fyrir allhvassa eða hvassa vestanátt í dag,13 til 20 metrum á sekúndu, þar sem víða megi búast við éljum, síst þó á Suðausturlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að veður fari kólnandi og síðdegis verði komið frost á bilinu 0 til 5 stig.

„Undir kvöld snýst vindur til norðlægrar áttar og snjókomubakki kemur inn á norðanvert landið, en þá má búast við stöku éljum syðra. Gular viðvaranir vegna hríðar eru í gildi seinnipartinn í dag og til fyrramáls á Vestfjörðum og Norðurlandi.

Á morgun gengur norðanáttin niður. Það léttir til um landið sunnan- og vestanvert og er sólríkur og fallegur dagur í vændum á þeim slóðum. Á Norður- og Austurlandi eru horfur á að dálítil él láti á sér kræla. Annað kvöld verður veður orðið skaplegt á landinu og úrkomulaust að mestu, en þá herðir á frosti og gætu tveggja stafa frosttölur mælst í flestum landshlutum,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Gular viðvaranir vegna hríðar eru í gildi seinnipartinn í dag og til fyrramáls á Vestfjörðum og Norðurlandi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Minnkandi norðanátt, 5-13 m/s síðdegis, en hvassara suðaustantil. Léttir til um landið sunnan- og vestanvert, en dálítil él á Norður- og Austurlandi. Frost 1 til 7 stig og herðir á frosti um kvöldið.

Á föstudag: Norðaustan 5-13 og él á norðanverðu landinu, en bjart veður sunnan heiða. Frost 1 til 10 stig, mildast syðst. Vaxandi austanátt og fer að snjóa við suðurströndina undir kvöld.

Á laugardag: Gengur í norðaustan storm með snjókomu víða um land. Frost 1 til 8 stig, kaldast norðanlands.

Á sunnudag: Norðaustan stormur og snjókoma framan af degi. Snýst í hægari sunnanátt eftir hádegi um landið sunnan- og austanvert með rigningu og hlýnar.

Á mánudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða rigning eða slydda. Hiti 1 til 5 stig. Suðvestanátt um kvöldið með éljum sunnan- og vestanlands og hiti um frostmark.

Á þriðjudag: Breytileg átt og dálítil él í flestum landshlutum. Hiti kringum frostmark yfir daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×