Erlent

Hafa enn ekki staðfest smit en grípa þó til aðgerða

Samúel Karl Ólason skrifar
Ríkisstjórn Kim dreifði þessari mynd á þriðjudaginn og segja kim hafa haldið ræðu vegna byggingar nýs sjúkrahús. Fjölmiðlar hafa þó ekki getað staðfest hvort það sé satt. Áður hafði Kim ekki sést opinberlega í nokkrar vikur.
Ríkisstjórn Kim dreifði þessari mynd á þriðjudaginn og segja kim hafa haldið ræðu vegna byggingar nýs sjúkrahús. Fjölmiðlar hafa þó ekki getað staðfest hvort það sé satt. Áður hafði Kim ekki sést opinberlega í nokkrar vikur. AP/KCNA

Yfirvöld Norður-Kóreu hafa meinað fólki sem ekki ber grímur að notast við almenningssamgöngur. Einræðisríkið hefur ekki staðfest útbreiðslu nýju kórónuveirunnar þar en óttast er að verið sé að hylma yfir faraldur sem gæti farið úr böndunum.

Norður-Kórea er á milli Kína og Suður-Kóreu. Í Kína hafa minnst 80 þúsund smitast og rúmlega þrjú þúsund dáið. Í Suður-Kóreu hafa minnst átta þúsund smitast og um 80 dáið.

Vannæring hefur lengi verið mikil í Norður-Kóreu og því er óttast að veiran gæti komið verr niður á íbúum þar en annars staðar.

Fregnir hafa borist af því að þúsundir séu undir eftirlit í Norður-Kóreu vegna veikinda og gripið hefur verið til ýmissa aðgerða sem eiga að koma í veg fyrir faraldur.

Yonhap fréttaveitan frá Suður-Kóreu segir ríkisstjórn Kom Jong Un hafa lokað landamærum ríkisins og Kína og hafa leik- og grunnskólar ekki verið opnaðir eftir frí sem átti að ljúka um miðjan febrúar.

Einnig er hitastig allra sem notast við almenningssamgöngur kannað og þeim er gert að vera með grímu og hanska.

Sérfræðingur sem Yahoo News í Ástralíu ræddi við sagði líkurnar á því að nýja kórónuveiran hafi dreifst til Norður-Kóreu vera miklar. Töluverð viðskipti eigi sér stað yfir landamæri einræðisríkjanna Norður-Kóreu og Kína og fregnir hafi borist af því að töluverður fjöldi hermanna hafi dáið.

Vísar hann til þess að Kim hafi ekki sést á almannafæri í margar vikur. Að miklu leyti er eingöngu um vangaveltur að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×