Innlent

Dregur úr hvass­viðri en gert ráð fyrir éljum í öllum lands­hlutum

Atli Ísleifsson skrifar
Við Reykjavíkurtjörn.
Við Reykjavíkurtjörn. Vísir/Vilhelm

Smám saman dregur nú úr hvassviðri og snjókomu á norðanverðu landinu, en þó er gert ráð fyrir éljum í öllum landshlutum í dag.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að eftir hádegi sé einnig útlit fyrir að snjói nokkuð drjúgt með suður og suðausturströndinni. Í kvöld lægi, létti til og herði talsvert á frosti. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi til hádegis í dag.

„Við strönd Nýfundnalands myndast lægð í dag sem gengur allhratt upp á Íslandi á morgun. Það hvessir úr suðri annað kvöld og þykknar upp og má búast við snjókomu og síðan slyddu, en ekki er útilokað að hláni við ströndina, einkum suðvestanlands.

Á laugardag er yfirleitt þokkalegasta veður en á sunnudag er útlit fyrir sunnan storm með talsverðri eða mikilli rigningu og hlýindum um allt land. Þá er viðbúið að snjór og klaki bráðni hratt og mikilvægt að nýta næstu daga til að moka rásir í snjó svo vatn komist rétta leið að niðurföllum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Víða léttskýjað, en stöku él á Vestfjörðum, við Breiðafjörð og einnig við suðurströndina um kvöldið. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Á föstudag: Gengur í sunnan 13-20 með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands og síðar rigningu við ströndina. Þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnar í veðri, hiti 0 til 4 stig eftir hádegi. Hægari suðvestanátt vestanlands um kvöldið með éljum og kólnar aftur.

Á laugardag: Suðvestan 8-15 og él. Snjókoma eða slydda austanlands framan af degi, en léttir til þar síðdegis. Víða vægt frost.

Á sunnudag: Gengur í sunnan storm með snjókomu eða slyddu, en síðar hláka um allt land með talsverðri rigningu sunnan og vestantil. Úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hlýnar í veðri, hiti 3 til 8 stig seinnipartinn.

Á mánudag: Útlit fyrir hvassa suðvestanátt með éljum eða slydduéljum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti nálægt frostmarki.

Á þriðjudag: Minnkandi suðvestanátt. Dálítil snjókoma vestantil á landinu en bajrtviðri austantil. Hiti 0 til 4 stig við suðurströndina annars yfirleitt vægt frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×