Innlent

Spá því að veturinn gangi í garð með látum annað kvöld

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er snjókoma í kortunum.
Það er snjókoma í kortunum. Vísir/Vilhelm

„Við erum búin að setja út fullt af viðvörunum. Þær taka gildi annað kvöld. Þá höfum við spáð því að veturinn gangi í garð með látum. Það verður alvöru vetrarveður næstu daga.“

Þetta sagði Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands um veðrið næstu daga en Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir sem gilda um stóran hluta landsins annað jvöld til miðnættis á fimmtudag. Þorsteinn var til viðtals í Reykjavík síðdegis í dag.

Gul viðvörun er í gildi fyrir Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og norðurland vestra og Miðhálendið.

„Það þýðir snjókoma já, hvassviðri og éljagangur og allur pakkinn,“ sagði Þorsteinn.

Segja má að viðvararnir komi í tveimur lotum með örlitlu hléi á milli. Fyrstu viðvaranir taka gildi um klukkan 19 á morgun, miðvikudag þegar skilin ganga á land. Nýjar viðvaranir taka svo gildi á hádegi á fimmtudag, 26. nóvember, þar sem varað er við suðvestan átt, 15-25 m/s með mjög litlu skyggni í éljum og því eru akstursskilyrði varasöm.

Skil kröftugrar lægðar ganga á land annað kvöld, og bera með sér það sem kalla mætti þokkalegt vetrarveður með suðaustan stormi, snjókomu eða slyddu sem spillir færð og skyggni á vegum.

„Á morgun seinnipartinn fer að vaxa vindur úr suðaustri. Það er að nálgast djúp og kröpp lægð sem kemur inn á Grænlandshafið á morgun. Henni fylgir vegleg úrkoma, vegleg skil sem munu valda úrkomu. Það byrjar að snjóa um kvöldmatarleytið á morgun úti á annesjum vestanlands. Svo færist þetta veður smám saman inn á landið með vaxandi suðvestanátt. Það verður komið hvassviðri eða stormur seinna um kvöldið og snjóar á öllu svæðinu,“ sagði Þorsteinn.

Hvaða svæði er þetta?

„Það er alveg frá Vogunum og norður á Húnaflóa. Vesturhluti landsins. Við erum aðallega að vara við því að færð getur spillst mjög fljótt á fjallvegum. Þá erum við að tala um Þrengslin, Hellisheiðina, Snæfellsnesið, Holtavörðuheiði, Laxárdalsheiði og Vestfirðina.“

Veðrið lætur á sér kræla um kvöldmatarleyti á morgun.

„Það sem gerist er að það er smám saman að hlýna á morgun með þessu hvassviðri og snjókomu þannig að snjórinn fer svona smátt og smátt yfir í slyddu og síðan rigningu á láglendi um og í kringum miðnætti.

En í kjölfarið á skilunum kemur suðvestanhvellur með stífri suðvestanátt, stormi jafnvel roki og dimmum og efnismiklum éljum,“ sagði Þorsteinn.

Gular viðvaranir eru í gildi.Vísir/Vilhelm

Veðurhorfur á landinu

Norðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él N- og A-lands, en annars skýjað með köflum. Hiti 0 til 5 stig. Lægir í nótt og léttir til, en kólnar talsvert. Vaxandi suðaustanátt á morgun og þykknar upp, fyrst um landið vestanvert, 15-23 m/s og slydda eða snjókoma þar undir kvöld, en rigning á láglendi um miðnætti. Dálítil slydda eða rigning SA-lands, en þurrt að kalla NA-til. Hiti víða 0 til 6 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Sunnan 13-20 m/s og talsverð rigning eða slydda í fyrstu, en úrkomulítið NA-lands. Hiti 2 til 7 stig. Snýst síðan í suðvestan 15-23 m/s með éljagangi S- og V-til og kólnar í veðri.

Á föstudag:

Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, en bjartviðri NA-lands, hvassast við S- og V-ströndina. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag: Ákveðin suðvestanátt og él, en bjartviðri eystra. Hiti kringum frostmark.

Á sunnudag:

Hæg suðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil snjókoma syðst og vestast. Talsvert frost.

Á mánudag: Líkur á vaxandi austanátt með slyddu eða rigningu á S-verðu landinu og hlýnandi veður.


Tengdar fréttir

Stinningskaldi og snjókoma í kortunum

Það er spáð norðaustanátt í dag, víða kalda og stinningskalda, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×