Ferðalangar frá Íslandi til Englands þurfa ekki að fara í sóttkví Vésteinn Örn Pétursson skrifar 3. júlí 2020 14:51 Frá Gatwick-flugvelli í London, Englandi. Chris J Ratcliffe/Getty
Ísland er meðal þeirra landa sem ferðast má frá til Englands, án þess að þurfa að sæta 14 daga sóttkví, frá og með 10. júlí. Þetta tilkynntu bresk stjórnvöld í dag. Samkvæmt reglum sem komið hefur verið á til þess að hamla útbreiðslu kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum, þurfa allir ferðalangar sem koma erlendis frá til Englands að sæta fjórtán daga sóttkví. Frá 10. júlí verður þó breyting á þessu og þeir ferðalangar sem ferðast frá ákveðnum ríkjum þurfa ekki að sæta sóttkví, að því gefnu að þeir hafi aðeins haldið til í þeim löndum sem er að finna á lista yfir „örugg lönd,“ með tilliti til kórónuveirunnar. Eins og áður sagði er Ísland á téðum lista, en þar er að finna fjölda annarra ríkja. Belgía, Þýskaland, Grikkland, Noregur og Frakkland eru þeirra á meðal. Hins vegar munu farþegar frá Svíþjóð og Bandaríkjunum, auk fjölda annarra ríkja, áfram þurfa að sæta sóttkví við komuna til Englands. Hér má nálgast lista yfir öll þau ríki sem ferðast má frá til Englands, án þess að sóttkvíar sé krafist, að því gefnu að viðkomandi ferðalangur hafi ekki dvalið í „óöruggu ríki“ 14 dögum fyrir komu til landsins.
England Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðalög Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira