Skoðun

Kæra Lilja

Steinunn Alda Gunnarsdóttir skrifar

Það eru gleðitíðindi að boðið sé til stórsóknar í menntamálum og ánægjulegt þegar aðgerðir skila sér, sérstaklega þegar kemur að eflingu kennaranáms. Nú er hins vegar stórt spurt. Hvernig nákvæmlega á að fylgja þessum aðgerðum eftir? Er eðlilegt að Háskólinn á Akureyri muni þurfa að hafna stórum hluta umsókna? Er eðlilegt að í kennaranámi, þar sem virkilega er vöntun og stefnir í kennaraskort á landinu, þurfi að hafna fjölda umsækjenda sem uppfylla öll inntökuskilyrði? Mun Háskólinn á Akureyri einhvern tímann öðlast þá viðurkenningu sem hann á skilið?

Gæði náms eru lykilatriði. Til þess að halda uppi öflugum gæðum háskólanna, þarf meðal annars að tryggja nægan fjölda starfsfólks, hvort sem um er að ræða starfsmenn akademíunnar eða stjórnsýslu og stoðþjónustu. Háskólinn á Akureyri hefur setið á hakanum allt of lengi og hefur þurft að grípa til aðgerða sem aðrir opinberir háskólar á Íslandi hafa ekki þurft, það er að takmarka aðgengi nemenda að háskólanum. Háskólinn á Akureyri gegnir ákveðinni lykilstöðu og samfélagsleg ábyrgð hans er mikil þegar kemur að aðgengi að námi óháð búsetu. Hið sveigjanlega námsfyrirkomulag Háskólans á Akureyri sem hefur verið í stöðugri þróun og eflingu síðustu 20 árin veitir breiðari hópi nemenda aðgengi að námi sem hefur í för með sér m.a. eflingu byggða.

Frá árinu 2015 hefur orðið veruleg aukning á nemendafjölda Háskólans á Akureyri, sama ár og nemendaígildin voru fryst. Einhverjir kunna að spyrja sig að því hvort að aðrir opinberir háskólar eins og t.d. Háskóli Íslands séu þá ekki að kljást við sama vandamál og Háskólinn á Akureyri. Staðreyndin er hins vegar sú, að í dag eru tugum prósenta fleiri nemendur í HA heldur en árið 2015. En í Háskóla Íslands eru nemendurnir í dag færri en árið 2015. Háskólinn á Akureyri hefur því síðustu ár, verið að mennta nemendur langt umfram það fjármagn sem fjöldanum fylgir. Afleiðingarnar af því eru til dæmis aukið álag á starfsfólk, samdráttur á vali nemenda í námi og herðing á öðrum mikilvægum útgjöldum háskólans.

Þriðja árið í röð eru fleiri en 2000 umsóknir til náms við Háskólann á Akureyri. Til þess að varðveita gæði náms og kennslu mun Háskólinn á Akureyri óhjákvæmlega þurfa að hafna stórum hluta umsókna. Það er jákvætt að Háskólinn á Akureyri setji gæði námsins í fyrsta sæti. Þó er um að ræða opinberan háskóla sem á ekki að þurfa að varðveita gæðin með því að takmarka aðgengi að námi.

Kæra Lilja, Mennta- og menningarmálaráðherra Íslands, ert þú reiðubúin að taka það nauðsynlega skref, að viðurkenna mikilvægi Háskólans á Akureyri?

Höfundur er formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.




Skoðun

Sjá meira


×