Innlent

Tvö smit greindust

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá íslenskri erfðagreiningu.
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá íslenskri erfðagreiningu. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, annar við landamæraskimun og hinn hjá Íslenskri erfðagreiningu, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is. Enginn greindist á veirufræðideild Landspítalans. Tveir greindust með veiruna sólarhringinn þar áður sömuleiðis. Fjórir þeirra sem greinst hafa á landamærunum eru smitandi en nítján eru það ekki, þ.e. með gömul smit en mælast enn með mótefni gegn veirunni. Einn bíður eftir niðurstöðum.

Virk smit á landinu eru tólf eins og í gær. Þá voru 1416 sýni tekin við landamæraskimun síðasta sólarhringinn, 408 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 56 hjá veirufræðideild Landspítala.

415 eru nú í sóttkví og fækkaði þeim um tæplega þrjátíu milli daga. Staðfest smit frá upphafi faraldurs eru orðin 1842. 1819 hafa náð bata.

Innanlandssmit frá 15. júní eru nú orðin sex. Innanlandssmit frá 15. júní eru nú orðin fimm. Tuttugu og fjögur smit má rekja til útlanda en tvö eru skráð með óþekkt upprunaland á Covid.is.

Samkvæmt þessum tölum hafa alls þrjátíu og tveir greinst með veiruna frá 15. júní. Þó ber að geta að aðeins fjórir af þeim tuttugu og tveimur sem greinst hafa við landamæraskimun eru smitandi. Nítján eru með svokölluð gömul smit og eru ekki smitandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×