Innlent

Hvass­viðri á morgun og gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi sem taka gildi snemma í fyrramálið og gilda fram á kvöld.
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi sem taka gildi snemma í fyrramálið og gilda fram á kvöld. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, með golu eða kalda þar sem víða verður léttskýjað. Spáð er skýjuðu veðri norðaustanlands og dálitlum éljum fram yfir hádegi. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig, en í kvöld þykknar svo upp með vaxandi austanátt á Suðurlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það gangi í austan 15 til 25 metra á sekúndu á morgun og verður hvassast syðst. Þessu fylgi snjókoma sunnanlands og á Austfjörðum og víða um land annað kvöld. Frost fer þá minnkandi.

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi sem taka gildi snemma í fyrramálið og gilda fram á kvöld. Staðbundið geti hviður farið yfir 50 metra á sekúndu. Er búist við talsverðri eða mikilli snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni og slæmum aktursskilyrðum, en víða rigningu eða slyddu á láglendi síðdegis. Ekkert ferðaveður.

„Á sunnudag er útlit fyrir stífa norðanátt, jafnvel hvassviðri eða storm norðaustantil á landinu. Snjókoma á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnanlands.

Gular viðvaranir taka gildi í fyrramálið.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Gengur í austan 15-25 m/s, hvassast syðst. Snjókoma eða slydda, einkum S- og A-lands og frost 0 til 5 stig en hlánar við suðurströndina síðdegis. Minnkandi austanátt um kvöldið.

Á sunnudag: Norðan 13-20 og snjókom eða él, en hægari og þurrt á S- og SV-landi. Frost 0 til 6 stig, en hiti um eða yfir frostmarki S-lands að deginum.

Á mánudag: Norðlæg átt og él á N-verðu landinu, en snjókoma syðst. Kalt í veðri.

Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt og él norðantil, en úrkomulaust sunnan heiða. Talsvert frost.

Á fimmtudag: Útlit fyrir svipað veður áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×