Dauður hvalur fannst í London Vésteinn Örn Pétursson skrifar 30. nóvember 2019 21:58 Hrefna. Myndin tengist fréttinni með óbeinum hætti. Wikimedia Commons/NOAA
Dauðum hval skolaði upp á bakka Thames-ár í London í annað sinn á tveggja mánaða tímabili. Hvalurinn, sem samkvæmt breska ríkisútvarpinu er talinn vera hrefna, fannst hreyfingarlaus undir Battersea-brúnni seint á föstudagskvöld. Hafnaryfirvöld í London segja að unnið sé að því að fjarlægja hræið í eins heilu lagi og mögulegt er. Í síðasta mánuði skolaði dauðum hnúfubak upp á bakka sömu ár. Clio Georgiadis sagði í samtali við BBC að hún hafi verið á gangi með hundinn sinn þegar hún kom að hvalnum á tíunda tímanum í gærkvöldi. „Ég var í tilfinningalegu uppnámi. Við reyndum að sjá hvort hann væri með lífsmarki en það var enginn andardráttur. Þetta var mjög sorglegt að sjá.“ Hafnaryfirvöld í borginni höfðu fengið ábendingar um stórt dýr í ánni Thames. Ekki kom á daginn um hvaða dýr var að ræða fyrr en hvalnum, sem eins og áður sagði er talinn vera hrefna, skolaði dauðum upp á bakkann. Hrefnur sjást af og til í breskri hafsögu, en þær þrífast best í köldum sjó. Dreifing þeirra um heiminn er afar mikil, en hrefnur er að finna í Atlantshafi, Kyrrahafi, Indlandshafi, Norður- og Suður-Íshafi.
Bretland Dýr England Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira