Skoðun

Lýðkjörinn og þá á ekkert að segja eða gera segir formaður KÍ

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar
Ég sem félagsmaður í Félagi grunnskólakennara er afar ósátt. Ástæðan hefur ekki farið framhjá þeim sem fylgist með. Dæmdur einstaklingur sem var lýðræðislega kosinn heldur embætti sínu og samviska hans ræður. Að auki þaggar stjórn FG málið, lætur ekkert frá sér heyra.

Veit vel að ekki er hægt að taka embætti af lýðkjörnum einstaklingi eða kjósa að nýju enda ekki farið fram á það. Ég vil að formaður KFR stígi til hliðar í þeim störfum sem hann sinnir fyrir grunnskólakennara þar til málið er til lykta leitt. Á ekki einu sinni að þurfa umræðu eins og einn félagsmaður sagði inn  á síðu grunnskólakennara. Sannist sakleysi er hann hjartanlega velkominn aftur til starfa.

Stjórn Félags grunnskólakennara getur sent yfirlýsingum um að hann stígi til hliðar á meðan málið er í áfrýjunarferli. Það er ekki bara að hann fari fyrir svæðafélagi heldur situr hann í samninganefnd og viðræðunefnd félagsins. Hafi stjórn FG fulla trú á honum efir dómsuppkvaðninguna vil ég fá að vita það sem félagsmaður og tel mig í fullum rétti til þess.

Stjórn Kennarafélags Reykjavík getur gert það sama. Stjórnin getur óskað eftir að formaðurinn stígi til hliðar þar til öll kurl eru komin til grafar. Það grefur undan trúverðugleika einstaklings sem ætlar að sitja eins og þrjóskur hrútur í embætti og veldur stéttinni skaða með því. Málið minnir á margt um mál dómsmálaráðherra þegar dómur MDE féll. Hún ætlaði að sitja sem fastast og allir gerðu vitleysu nema hún.

Svæðadeildir félags grunnskólakennara geta líkað skorað á formanninn að stíga til hliðar. Deildirnar eru hluti af félaginu og kljást við ímynd félagsins út á við. Svona uppákoma skaðar ímynd og trúverðugleika stéttarinnar.

Samninganefnd og viðræðunefnd ættu að gefa út yfirlýsingu um málið. Ef ekki stuðningsyfirlýsingu þá áskorun að formaðurinn stígi til hliðar þannig að stéttin viti hug þeirra í málinu. Ég skil ekki aðgerðaleysi viðkomandi nefndarmanna í þessu máli.

Stjórn sem tekur ekki af skarið, eins og stjórn FG, skaðar heildina en verndar einstaklinginn. Stundum þarf maður að gera meira en það sem gott þykir. Enn á ný skora ég á stjórn Félags grunnskólakennara að koma með yfirlýsingu, annað tveggja stuðningsyfirlýsingu eða ósk um að formaðurinn stígi tímabundið til hliðar. Afstöðuleysi er ekki í boði að mínu mati.

Þegar núverandi stjórn barðist fyrir kjöri sínu var félagsmönnum lofað, af hluta stjórnar, að starfshættir myndu breytast frá fyrri stjórn. Þeir töldu margt að á þeim bæ. Ég beit á agnið með suma stjórnarmennina og hef orðið fyrir vonbrigðum. Margir bíða enn eftir breytingunum sem boðaðar voru fyrir rúmu ári síðan.

Stjórn stéttarfélags sem sýnir félagsmönnum svona framkomu missir trúverðugleika. Nú þegar hefur stjórn FG beðið hnekki og trúverðugleiki stjórnarinnar minnkar svo lengi þaggar niður umrætt mál.

Höfundur er grunnskólakennari, trúnaðarmaður og varaformaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×