Þýskir græningjar velgja flokki Merkel undir uggum Kjartan Kjartansson skrifar 6. júní 2019 13:53 Ríkisstjórn Merkel kanslara hefur átt í vök að verjast. Nú sækir umhverfisverndarflokkur að henni. Vísir/EPA
Fylgi þýska umhverfisflokksins Græningja hefur aldrei mælst meira en í skoðanakönnun sem birt var í dag. Flokkurinn naut velgengni í Evrópuþingskosningunum í síðasta mánuði og er nú aðeins einu prósentustigi á eftir Kristilega demókrataflokki Angelu Merkel kanslara. Græningjar fengju 26% atkvæða ef marka má könnunina sem gerð var fyrir ZDF-sjónvarpsstöðina. Fylgi þeirra hefur aldrei mælst meira frá því að byrjað var að gera könnunina árið 1991, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Samkvæmt þessu væri umhverfisverndarflokkurinn næst stærsti flokkur Þýskalands en Sósíaldemókratar, samstarfsflokkur Merkel í ríkisstjórn, mælist með 13%. Stjórnmálaskýrendur telja að könnunin bendi til þess að pólitíska landslagið í Þýskalandi sé enn að brotna upp. Á 10. áratugnum fengu tveir stærstu flokkarnir yfirleitt allt að 80% atkvæða samtals. Nú er fylgi þeirra helmingi minna en þá. Stjórnarmyndunarviðræður drógust mjög á langinn eftir kosningarnar árið 2017. Eftir sex mánaða langar viðræður enduðu kristilegir demókratar og sósíaldemókratar saman í ríkisstjórn. Síðarnefndi flokkurinn hefur átt undir högg að sækja undanfarið og er undir þrýstingi að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu.
Þýskaland Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira