Fjallaljónið sem hlaupari kyrkti var munaðarlaus hvolpur Kjartan Kjartansson skrifar 3. mars 2019 07:41 Fjallaljónsungar að leik í dýragarði. Dýrið sem réðst á hlauparann í Colorado hefur verið nokkuð stærra. Vísir/EPA
Krufning á fjallaljóni sem bandarískur hlaupari kyrkti í síðasta mánuði var ungur hvolpur sem var líklega munaðarlaus. Atvikið vakti heimsathygli en hlauparinn drap fjallaljónið með því að stíga á hálsinn á því þegar það réðst á hann á hlaupaleið í Colorado. Dýralífseftirlitsmenn í Colorado segja að hvolpurinn hafi verið fjögurra til fimm mánaða gamall og vegið um átján kíló. Dýrið hafi drepist af höggáverka og kyrkingu, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Ekki var hægt að staðfesta kyn dýrsins þar sem önnur dýr höfð gætt sér á hræinu áður en landverðir komu á staðinn. Líklegast er þó talið að hvolpurinn hafi verið karldýr. Travis Kauffman segist hafa verið að skokka á þekktri hlaupaleið norðvestur af Denver þegar hann heyrði þrusk í furunálum. Þegar hann sneri sér við hafi hann staðið augliti til auglitis við fjallaljón. Þrátt fyrir að hann hafði reynt að baða út örmum og öskra hafi ljónið stokkið á hann. Fjallaljónið læsti skoltum sínum í höndina á Kauffman og veitti honum skurði með klónum á andliti og hálsi. Átökin segir hann hafa staðið yfir í um þrjár mínútur. Á endanum hafi honum tekist að komast ofan á ljónið og þrengt að hálsi þess með fætinum þar til það hætti að berjast um.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira