Skoðun

Lífsháski

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Fólk sem fast er í viðjum fíknar stendur frammi fyrir bráðum lífsháska á degi hverjum. Ekki auðnast öllum sem það reyna að losna úr fjötrunum. Það sanna dæmin. Margir sem standa í þeim sporum falla fyrir fíkninni fyrir aldur fram.

Úr þeim hópi sem glímir við fíkn standa þeir sem sprauta vímuefnum í æð höllustum fæti. Ef marka má BS-ritgerð Eddu Rúnar Kjartansdóttur og Þórunnar Hönnu Ragnarsdóttur við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands frá 2017 eru einstaklingar undir 30 ára aldri sem sprauta vímuefnum í æð í um 30 sinnum meiri hættu á ótímabærum dauðdaga en jafnaldrar þeirra. Þeir eru líkamlega og andlega veikari en þeir sem glíma við annars konar fíkn. Um 12-13 einstaklingar deyja af þessum sökum ár hvert.

Margar kenningar eru um hvernig samfélagið skuli nálgast vandann. Ein kenning nefnist skaða­minnkun og hefur notið vaxandi hylli undanfarna áratugi. Skaðaminnkun snýst um að draga úr þeim heilsufarslegu og félagslegu ógnum sem notkun vímuefna kallar yfir fólk, án þess að draga endilega úr vímuefnanotkuninni sjálfri. Áherslan er á að fyrirbyggja skaðann sem af vímuefnanotkuninni hlýst, fremur en neysluna sjálfa.

Hér á landi komu úrræði sem teljast skaðaminnkandi fyrst til sögunnar árið 2009, þegar sérinnréttaður bíll hóf að aka um höfuðborgarsvæðið á kvöldin og veita þessum hóp heilbrigðisaðstoð. Bjóða upp á hreinar nálar, sprautur og annað sem þarf til að draga úr líkum á smiti á sjúkdómum eins og HIV og lifrarbólgu C. Síðan hafa fleiri úrræði litið dagsins ljós. Konukot, Gistiskýlið á Lindargötu, viðhaldsmeðferð hjá SÁÁ og móttökudeild fíknimeðferðar á Landspítalanum, svo nokkur séu nefnd.

Á síðasta ári tilkynnti heilbrigðisráðherra að til stæði að opna svokölluð neyslurými í borginni á þessu ári, þar sem þeim sem sprauta vímuefnum í æð er skapað öruggt umhverfi til að neyta vímuefnanna. Þeim verði tryggður aðgangur að hreinum nálum og gjaldfrjálsri grunnheilbrigðisþjónustu. Fíklar hafa nefnilega ekki fyrirgert mannréttindum sínum. Þeir eiga rétt á að lifa við bestu mögulegu heilsu miðað við aðstæður.

Í ráðuneytinu hljóta menn að vera að velta fleiru fyrir sér. Til dæmis hvort hið opinbera ætti hreinlega að útvega fíklum efnin. Margoft hefur verið sýnt fram á ofbeldið og mannúðarleysið sem þrífst í undirheimum. Slíkt gæti fækkað afbrotum, ofbeldi og útrýmt að mestu svörtum markaði með lyfseðilsskyld lyf.

Önnur hugmynd væri að gefa fíklum endurgjaldslaust lyfið Naloxon, sem notað er til að endurlífga fólk sem hefur tekið of stóran skammt, sem það gengi með á sér. Þegar fólk deyr af sökum ofneyslu er það oftast annað fólk í neyslu sem er fyrst á vettvang.

Með þessum aðferðum, og eflaust fleirum, má bjarga mannslífum.




Skoðun

Sjá meira


×