Sendinefnd AGS segir nýja áhættu í sjónmáli í flugsamgöngum Birgir Olgeirsson skrifar 25. september 2018 11:07 Íslensku flugfélögin hafa fundið fyrir harðnandi samkeppni og hækkun á olíuverði. Vísir/Vilhelm
Hægari hagvöxtur á Íslandi eftir ósjálfbæran vöxt síðustu ár er jákvæð þróun. Þetta kemur fram í áliti sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir árlega tveggja vikna heimsókn hér á landi. Í álitinu kemur fram að áhætta hafi aukist en viðnámsþróttur hafi aukist og stefna beri að því að bæta viðnám enn frekar. Þar segir jafnframt að áætlanir í ríkisfjármálum geri ráð fyrir nauðsynlegum fjárútlátum til innviða, heilbrigðisþjónustu og menntunar, en gæta þurfi að forgangsröðun og framkvæmd svo að markmiðum í ríkisfjármálum verði náð. Stefna í peningamálum þarf áfram að beinast að verðstöðugleika. Stefna varðandi fjármálastöðugleika þarf að beinast bæði að þjóðhagsvarúð og eindarvarúð. Frekari styrking eftirlits með fjármálageiranum þarf að njóta forgangs og nú tíu árum eftir fjármálahrun sé tilefni til afgerandi aðgerða. Þá segir sendinefndin að betra fyrirkomulag kjaraviðræðna sé nauðsynlegt fyrir samkeppnishæfni, frekari þróun í ferðamannaþjónustu krefst heildrænnar stefnumótunar, og sjálfbærar veiðar kalla á áframhaldandi viðleitni til alþjóðlegrar samvinnu. Sendinefndin segir hægari vöxt í hagkerfinu hafa dregið úr áhyggjum af ofhitnun. Styrking krónunnar á árunum 2014 til 2016 hafi, með töf, dregið úr vexti í ferðamennsku og vexti innlendrar eftirspurnar.Aukið framboð hægir á verðhækkunum Aukið framboð nýs húsnæðis hefur hægt á verðhækkunum á fasteignamarkaði. Lánavöxtur hefur aukist en frá lágum upphafspunkti. Gengi krónunnar hefur á heildina verið stöðugt frá miðju ári 2017 sem er betra fyrir útflytjendur en ef styrking undanfarinna ára hefði haldið áfram. Verðbólga hefur verið nálægt opinberu markmiði í fimm ár, sem er eftirtektarverður árangur í ljósi sögu verðóstöðugleika á Íslandi. Sérfræðingar AGS búast við að smám saman muni hægja á hagvexti þar til hann nær sjálfbærari slóðum í kringum tvö og hálft prósent. Sendinefndin segir hins vegar nýja áhættu í sjónmáli og nefnir þar hátt olíuverð og aukna samkeppni í flugsamgöngum. Það séu áskoranir sem flugþjónustan stendur frammi fyrir.Aukin spenna í alþjóðaviðskiptum Aukin spenna í alþjóðaviðskiptum gæti haft neikvæð áhrif á útflutningsverð á áli og öðrum varningi. Óvissa tengd samningaviðræðum um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu eykur líkurnar á veikari útflutningseftirspurn frá einum af stærstu mörkuðum Íslands og gæti flækt frekar fiskveiðisamvinnu á Norður-Atlantshafi. Að lokum gætu komandi samningaviðræður á vinnumarkaði leitt til þess að laun hækka um of, með neikvæðum áhrifum á samkeppnishæfni landsins. Sendinefndin segir að í tilefni af því að tíu ár séu liðin frá fjármálahruninu sé komið að aðgerðum í stað umræðna. Sér sendinefndin kosti í að sameina allt eftirlit með fjármálageiranum, þrautavaralánveitingar og verkefni skilavalds í Seðlabanka Íslands. Það muni auka samlegðaráhrif, koma í veg fyrir óþarfa skörun verkefna, samþætta betur eindar- og þjóðhagsvarúð, endurspegla kerfislegt mikilvægi íslensku lífeyrissjóðanna og efla viðbúnað fyrir hnekki í framtíðinni. Með því að færa í reynd fjármálaeftirlit inn í Seðlabankann mætti einnig lágmarka annmarka í breytingaferlinu.Bæta þurfi samningalíka á vinnumarkaði Sjóðurinn styður eindregið viðleitni til að bæta samningalíkan á vinnumarkaði og tengja það framleiðnivexti og samkeppnishæfni. Þar sem kaupmáttur hefur aukist um 25% prósent á síðustu fjórum árum sem er eftirtektarvert – og jafnvel meira ef reiknað er í erlendum gjaldeyri – ættu kjarasamningar að verða í takti við framleiðniaukningu til að koma í veg fyrir áframhaldandi vöxt launakostnaðar á framleidda einingu. Að styrkja sjálfbærni hagvaxtar og umhverfis ætti einnig að vera forgangsmál. Hægari vöxtur í ferðamannaþjónustu hefur leitt í ljós mikilvægi þess að innleiða heildræna sýn og grípa til áþreifanlegra aðgerða, t.a.m. að bæta þjónustu við vinsæla ferðamannastaði og aðgengi að stöðum lengra frá Reykjavík. Í sjávarútvegi er varfærin stjórn á sjávarauðlindinni lykilatriði í velgengni geirans og ætti að fela í sér frekari viðleitni til að tryggja varanlega samninga um flökkustofna við aðrar fiskveiðiþjóðir í Norður-Atlantshafi.
Fréttir af flugi Icelandair WOW Air Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Fleiri fréttir „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Sjá meira