Innlent

Hafna stöðvun á Þingvallavegi

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Í rökstuðningi sínum vísar Landvernd til ýmissa verndarákvæða sem eiga við um svæðið.
Í rökstuðningi sínum vísar Landvernd til ýmissa verndarákvæða sem eiga við um svæðið. VÍSIR/VILHELM
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnar kröfu Landverndar um stöðvun framkvæmda við Þingvallaveg enda hafi framkvæmdaleyfi ekki verið gefið út.

Landvernd kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar um að endurbætur á Þingvallavegi á milli þjónustumiðstöðvar og vegamóta við Vallarveg þyrftu ekki í mat á umhverfisáhrifum.

Sjá einnig: Landvernd vill Þingvallaveg í umhverfismat og krefst stöðvunar



Þess var krafist að framkvæmdin færi í slíkt mat og að framkvæmdir við endurbætur vegarins yrðu stöðvaðar á meðan fjallað væri um málið.

„Verður ekki séð að knýjandi nauðsyn sé á að fallast á kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda, enda veitir hin kærða ákvörðun ekki heimild til þess að þær hefjist,“ segir úrskurðarnefndin hins vegar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×