Alþjóðlegt teymi geimvísindamanna fundu vísbendingar um vatn á ytri reikistjórnum sólkerfisins Trappist-1. Geimvísindamenn tilkynntu í febrúar að sjö plánetur á stærð við jörðina væru á braut um rauðu dvergstjörnuna Trappist-1 sem er í um 40 ljósára fjarlægð. Sólkerfið þótti mjög lífvænlegt og var talið mögulegt að vatn gæti fundist í fljótandi formi á minnst þremur reikistjörnum innan lífbeltisins.
Ekki er hægt að segja að fljótandi vatn leynist á plánetunum. Eins og það er útskýrt á Stjörnufræðivefnum þá mældu vísindamennirnir útfjólublátt ljós frá reikistjörnunum í sólkerfinu. Það klýfur vatnsgufu úr lofthjúpum í vetni og súrefni.
Vetnið streymir út í geiminn, þar sem það er mjög létt og með því að mæla það telja vísindamennirnir að reikistjörnurnar hafi tapað miklu magni af vatni í gegnum tíðina. Þá sérstaklega innstu reikistjörnurnar Trappist-1a og 1b.
Þær gætu hafa misst vatn sem jafngildir um tuttugu sinnum því magni sem finna má í höfum jarðarinnar á átta milljörðum ára.
Sjá einnig: Trappist-1 mögulega tvisvar sinnum eldri en sólin
Pláneturnar e,f og g hafa líklega tapað mun minna af vatni. Mögulegt er að þar sé enn vatn og jafnvel í fljótandi formi. Vísindamennirnir taka þó fram að ekki sé hægt að segja af eða á.
Fundu ummerki um vatn í sólkerfinu Trappist-1
Tengdar fréttir
Trappist-1 mögulega tvisvar sinnum eldri en sólin
Ekki liggur fyrir hvað þessi mikli aldur mun þýða fyrir mögulegt líf í sólkerfinu.
„Við viljum finna aðra Jörð“
Sævar Helgi Bragason segir að uppgötvun á sjö reikistjörnum á stærð við jörðu sé býsna merkileg, ekki síst fyrir þær sakir hversu nálægt okkur reikistjörnurnar eru.
Hvað værum við lengi að fara til TRAPPIST-1?
Í kílómetrum talið er sólkerfið Í um 369 billjón kílómetra fjarlægð. Það eru 369.000.000.000.000 kílómetrar.
Fundu sólkerfi með sjö reikistjörnum á stærð við Jörðina
Stjörnufræðingar hafa fundið sólkerfi með sjö reikistjörnum á stærð við Jörðina í aðeins 40 ljósára fjarlægð. Að minnsta kosti sex innstu reikistjörnurnar eru álíka stórar og heitar og Jörðin.
Ákjósanleg fjarreikistjarna til að leita að lífi fundin
Fjarreikistjarnan LHS 1140b gæti hafa haldið í lofthjúp sinn og boðið upp á lífvænlegar aðstæður. Vísindamenn telja hana heppilegasta kostinn til að leita að merkjum um líf utan jarðarinnar.