Hóta að byggja upp kjarnorkuvopn með auknum hraða Samúel Karl Ólason skrifar 1. maí 2017 18:01 Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast ætla að hraða kjarnorkuvopnaáætlun sinni og ýja að nýrri tilraunasprengingu. Þeir saka Bandaríkin um að auka spennu á svæðinu með árásargirni og „móðursýki“ og segja að ef ekki væri fyrir kjarnorkuvopn Norður-Kóreu væri þegar búið að gera innrás í landið. Þetta kemur fram í ríkismiðli Norður-Kóreu, KCNA, þar sem rætt er við talsmann Utanríkisráðuneytis landsins. Bandaríkin hafa sent flugmóðurskipið USS Carl Vinson á svæðið til sameiginlegra æfinga með Suður-Kóreu. Þar að auki hafa Bandaríkin kallað eftir frekari þvingunum gegn Norður-Kóreu og pólitískum þrýstingi. Þá sérstaklega frá Kína. Norður-Kórea hefur framkvæmt fimm kjarnorkusprengjutilraunir í trássi við ályktanir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Samhliða kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins hafa þeir einnig verið að þróa langdrægar eldflaugar með því yfirlýsta markmið að koma upp eldflaugum sem gætu drifið til Bandaríkjanna. Nú síðast skutu þeir eldflaug á loft á laugardaginn. Sú tilraun misheppnaðist þó. Þar að auki hafa Norður-Kóreumenn æft kjarnorkuvopnaárásir á Japan. Bandaríkin vinna nú að því að koma upp svokölluðu THAAd-Eldflaugavarnarkerfi í Suður-Kóreu. Það kerfi hefur nú verið gangsett, en enn á eftir að klára uppsetningu þess. Þá sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í dag að hann myndi hitta Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, undir réttum kringumstæðum.
Norður-Kórea Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira