Körfubolti

Martin stoðsendingahæstur í auðveldum sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin var öflugur í kvöld.
Martin var öflugur í kvöld. vísir/ernir
Martin Hermannsson átti góðan leik þegar Charleville-Mezieres vann stórsigur á Saint-Quentin, 98-64, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Þetta var þriðji sigur Charleville-Mezieres í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 3. sæti deildarinnar.

Martin skoraði 13 stig í leiknum, tók þrjú fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Íslenski landsliðsmaðurinn var stoðsendingahæstur á vellinum.

Martin hitti úr þremur af sex skotum sínum utan af velli og nýtti fjögur af fimm vítum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×