Körfubolti

Jakob og félagar komnir í sumarfrí

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob skoraði níu stig í kvöld.
Jakob skoraði níu stig í kvöld. vísir/valli
Jakob Örn Sigurðarson og félagar í sænska körfuboltaliðinu Borås Basket eru komnir í sumarfrí eftir 79-97 tap fyrir Uppsala Basket í kvöld.

Uppsala vann einvígið 3-1 og er komið áfram í undanúrslit um sænska meistaratitilinn.

Jakob var að venju í byrjunarliði Borås og lék nánast allan tímann. Landsliðsmaðurinn fyrrverandi skoraði níu stig, tók þrjú fráköst og gaf sex stoðsendingar. Jakob hitti úr fjórum af níu skotum sínum utan af velli.

Jakob er fyrirliði Borås. Hann hefur leikið með liðinu frá 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×