Stjórnarmaðurinn sem reifst við Pétur hættur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. ágúst 2015 17:12 Pétur og félagar eru í vondum málum í 1. deildinni. vísir/andri marinó
Viðar Guðjónsson er hættur í stjórn knattspyrnudeildar Fram eftir atvik sem átti sér stað í leik Fram og Selfoss í gær. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu Fram. Viðar hafði afskipti af störfum Péturs Péturssonar, þjálfara Fram, í leiknum í gær og kom til orðaskipta þeirra í milli. Samkvæmt frétt Fótbolta.net gekk Viðar að varamannabekk Fram og sagði eitthvað við Pétur sem brást ókvæða við, ýtti við Viðari og sagði honum að „drulla sér í burtu“. Viðar er nú hættur í stjórn knattspyrnudeildar sem lýsir yfir stuðningi við Pétur. Fram tapaði leiknum 1-2 og er nú aðeins tveimur stigum frá fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir af 1. deildinni. Nánar verður fjallað um málefni Fram í Fréttablaðinu á morgun.Yfirlýsingin í heild sinni: Vegna atviks sem átti sér stað á meðan á leik Fram og Selfoss stóð í gær, þegar stjórnarmaður í knattspyrnudeild reyndi að hafa afskipti af störfum þjálfara, skal áréttað að stjórn knattspyrnudeildar hefur tekið á málinu og mun viðkomandi stjórnarmaður stíga til hliðar. Stjórn knattspyrnudeildar Fram harmar uppákomuna og lýsir yfir fullum stuðningi við Pétur Pétursson þjálfara. Stjórnin hvetur alla Framara til að snúa nú bökum saman í baráttunni fyrir áframhaldandi sæti í 1. deild. Áfram Fram ! Sverrir Einarsson Formaður Knattspyrnudeildar FRAM
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Lars sendi kveðju til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Sjá meira