Íslenski boltinn

Engin bikarþreyta í KA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ævar Ingi var á skotskónum fyrir KA.
Ævar Ingi var á skotskónum fyrir KA. vísir/stefán
120 mínúturnar í bikarleiknum gegn Breiðabliki á fimmtudag komu ekki í veg fyrir sigur KA á BÍ/Bolungarvík í fyrstu deild karla, en liðin mættust á Akureyri í dag.

Fyrsta markið kom eftir sjö mínútna leik, en það gerði vinstri bakvörðurinn Hilmar Trausti Arnarson. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Ævar Ingi Jóhannesson heldur áfram að standa sig frábærlega, en þessi unglingalandliðsmaður skoraði sigurmarkið gegn Breiðabliki á fimmtudag. Hann skoraði síðara mark KA á 67. mínútu og lokatölur 2-0.

KA er í fjórða sætinu með fjórtán stig, en þeir eru stigi á eftir Þór og Fjarðabyggð sem eru í sætunum fyrir ofan þá. BÍ/Bolungarvík er í fallsæti, því ellefta, með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×